Samþykkja vínveitingaleyfi fyrir KSÍ 3. október 2008 15:42 MYND/Pjetur
Borgarráð hefur samþykkt umsókn Knattspyrnusambands Íslands um rekstrarleyfi fyrir veitingastað með vínveitingaleyfi í höfuðstöðvum sínum. Umsókn þessa efnis var samþykkt á fundi borgarráðs í gær. Samkvæmt umsókn KSÍ er veitingastaðurinn skilgreindur í flokki þrjú sem felur í sér að um sé að ræða umfangsmikinn áfengisveitingastað. Sótt er um leyfi til að veita áfangi til klukkan eitt að nóttu á virkum dögum og til þrjú um helgar. Fram kemur í umsókn um rekstrarleyfið að samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar séu áfengisveitingar ekki heimilaðar á veitingastöðum í húsum þar sem fram fara skipulegar íþróttaæfingar barna og unglinga. Þar sem eingöngu sé um að ræða sérinngang inn á veitingastað megi heimila þar áfengisveitingar. Þá eigi bannið ekki við um veitingastaði í húsum sem einungis eru til félagsstarfs en hvorki til íþróttaæfinga né keppni. Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur gerir ekki athugasemdir við að KSÍ fái rekstrarleyfið þar sem umsóknin sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag Reykjavíkurborgar segja til um. Þau skilyrði eru sett í umsögn um rekstrarleyfið að KSÍ haldi lóð og nánasta umhverfi veitingastaðarins hreinu og þrífi ávallt að skemmtun lokinni. Það er lögreglustjóri sem á endanum gefur út rekstrarleyfið en það er einnig háð samþykki eldvarnareftirlits slökkviliðsins, umsögn umhverfissviðs og byggingarfulltrúa.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira