Aftur óvissa um málefni Gagnaveitunnar 25. janúar 2008 11:58 Kjartan Magnússon
Ekki liggur enn ljóst fyrir hvort nýjum meirihluta í borgarstjórn fylgi nýjar áherslu í málefnum Gagnaveitu Reykjavíkur. Fráfarandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, Bryndís Hlöðversdóttir, ákvað í desember síðastliðnum að falla frá ákvörðun sem tekin var í borgarstjóratíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um að leita eftir tilboðum í hlutafé Gagnaveitunnar en Orkuveitan fer með allt hlutafé í fyrirtækinu. Stjórnin samþykkti tillögu Bryndísar en tveir greiddu atkvæði á móti. Það voru þeir Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúar sjálfstæðismanna. Þeir létu í kjölfarið bóka að Gagnaveitan væri í óeðlilegri samkeppni við önnur fjarskiptafyrirtæki og að skynsamlegt væri að losa hana úr eigu hins opinbera. Kjartan var svo í gær kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Aðspurður hvort það tákni stefnubreytingu í málefnum Gagnaveitunnar svaraði Kjartan að það liggi enn ekki fyrir. Rekstur fyrirtækisins yrði skoðaður ofan í kjölinn og ákvörðun tekin í kjölfarið hvort rétt sé að leita tilboða í hlutaféð. Kjartan sagðist ekki vera á annari skoðun en hann var í desember en tók hins vegar fram að vinna þyrfti málið í sameingu við samstarfsaðila sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Þar að auki væri ekki víst að rétti tíminn væri að selja nú og vísaði til erfiðleika á fjármálamörkuðum. Gagnaveita Reykjavíkur er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur sem sér um rekstur ljósleiðaranetsins. Gagnaveitan var stofnuð sem svið innan Orkuveitu Reykjavíkur í janúar 2005 en var breytt í hlutafélag tveim árum síðar. Viðskiptavinir Gagnaveitunnar eru bæði fyrirtæki og heimili á veitusvæðum Orkuveitunnar.
Mest lesið Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Innlent Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Fleiri fréttir Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu Sjá meira