Þrjátíu fyrirtæki beitt dagsektum í átaki Vinnumálastofnunar 25. janúar 2008 11:20 Gissur Pétursson er forstjóri Vinnumálastofnunar. MYND/Einar Ben Thorsteinsson
Níutíu fyrirtæki fengu áminningarbréf og þrjátíu þeirra voru beitt dagsektum í tengslum við átak Vinnumálastofnunar gegn óskráðum verkamönnum og undirboðum á vinnumarkaði. Fram kemur í frétt frá félagsmálaráðuneytinu að verkefninu, sem bar nafnið Allt í ljós, sé nú formlega lokið og hefur ráðherra verið skilað greinargerð um það. Haft er eftir Gissuri Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunar, að reynsla verkefnisins muni nýtast vel við næstu skref í eftirlisstörfum stofunarinnar með erlendu vinnuafli og skráningu þess. Þar á að bera niður hjá fyrirtækjum í verslun og þjónustu, einkum veitingahúsum, í samvinnu við lögreglu og hefst það verkefni í byrjun mars. Hefur verið ráðinn starfsmaður hjá stofnuninni til frambúðar til að stýra eftirlitsstörfum. Með honum munu starfa þrír starfsmenn á skrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík en jafnframt munu þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar um allt land sinna eftirlitsstörfum eftir efnum og ástæðum. Talsvert um óskráða einstaklinga á byggingarstöðum Starfsmenn Vinnumálastofnunar heimsóttu alls 124 vinnustaði í tengslum við átakið Allt í ljós og voru starfsmenn 267 fyrirtækja þar við störf. Flestir vinnustaðirnir eru á höfuðborgarsvæðinu. Vinnustaðaheimsóknir á stærri byggingarstaði fólust einkum í því að ná tali af aðalverktaka og fá nafnalista með öllum undirverktökum og starfsmönnum á byggingarstað. Talsvert var um að óskráðir einstaklingar kæmu í ljós í kjölfar vinnustaðaeftirlitsins, tvær starfsmannaleigur voru skráðar í kjölfar eftirlitsferða og tvö þjónustufyrirtæki komu upp á yfirborðið. Að minnsta kosti ein starfsmannaleiga fór í „tiltekt" sem tengist átakinu. Ýmsar aðrar vísbendingar eru um að starfsmannaleigur og þjónustufyrirtæki hafi vandað sig meira við skráningu vegna átaksins, segir á vef félagsmálaráðuneytisins. Af þeim 30 fyrirtækjum sem voru beitt dagsektum eru mál sumra þeirra í innheimtu um þessar mundir. Þrátt fyrir að átaksverkefninu sé lokið segir Gissur nauðsynlegt að hafa í huga að eftirrekstur Vinnumálastofnunar um skráningar erlendra starfsmanna sé ekki verkefni sem tekur enda. Stöðugt bætist við nýir einstaklingar og sem dæmi nefnir hann fjölda umsókna um kennitölur til Þjóðskrár. Í október voru þær 1.375, í nóvember 789 og í desember voru þær 516.
Mest lesið Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Erlent Ísraelar gera loftárásir á Katar Erlent Gefa grænt ljós á handtökur á grundvelli kynþáttar og málnotkunar Erlent Opinbera bréf Trumps til Epsteins Erlent Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Innlent Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Innlent Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Innlent Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Innlent Verið ættleiddur af Íslendingum Innlent Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Innlent Fleiri fréttir Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Ríkisstjórnin sýnir á spilin og Alþingi sett í dag Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Gagnrýnir hæstu ríkisútgjöld sögunnar í fjárlagafrumvarpi Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Reyksprengju kastað inn á pall í Hafnarfirði Verið ættleiddur af Íslendingum Fyrsti dagur Kvikmyndaskólans: „Það besta sem hefur gerst fyrir skólann síðan í apríl“ Hækka hámarksgreiðslur um hundrað þúsund krónur Uppfæra ekki fríverslunarsamning og banna tvo ráðherra Tveir fluttir til aðhlynningar eftir árekstur á Suðurlandsvegi Tekist á um fjárlög, lykkjumálið og aleigan í rafmynt Einn bílstjóri án leyfis og skráningar „Sultaról rithöfunda enn hert“ í fjárlögum Óásættanlegt að almennir starfsmenn séu beittir óeðlilegum þrýstingi Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Skjálfti upp á 3,3 í Vatnafjöllum Afnemur æviskipanir varasaksóknara eftir mál Helga Magnúsar Gul úrkomuviðvörun á Austfjörðum og á Suðausturlandi Gestur Guðmundsson er látinn Breski sundkappinn kominn í land og lofsyngur Íslendinga Sjá meira