Innlent

Þrjátíu fyrirtæki beitt dagsektum í átaki Vinnumálastofnunar

Gissur Pétursson er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Gissur Pétursson er forstjóri Vinnumálastofnunar. MYND/Einar Ben Thorsteinsson

Níutíu fyrirtæki fengu áminningarbréf og þrjátíu þeirra voru beitt dagsektum í tengslum við átak Vinnumálastofnunar gegn óskráðum verkamönnum og undirboðum á vinnumarkaði.

Fram kemur í frétt frá félagsmálaráðuneytinu að verkefninu, sem bar nafnið Allt í ljós, sé nú formlega lokið og hefur ráðherra verið skilað greinargerð um það.

Haft er eftir Gissuri Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunar, að reynsla verkefnisins muni nýtast vel við næstu skref í eftirlisstörfum stofunarinnar með erlendu vinnuafli og skráningu þess. Þar á að bera niður hjá fyrirtækjum í verslun og þjónustu, einkum veitingahúsum, í samvinnu við lögreglu og hefst það verkefni í byrjun mars.

Hefur verið ráðinn starfsmaður hjá stofnuninni til frambúðar til að stýra eftirlitsstörfum. Með honum munu starfa þrír starfsmenn á skrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík en jafnframt munu þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar um allt land sinna eftirlitsstörfum eftir efnum og ástæðum.

Talsvert um óskráða einstaklinga á byggingarstöðum

Starfsmenn Vinnumálastofnunar heimsóttu alls 124 vinnustaði í tengslum við átakið Allt í ljós og voru starfsmenn 267 fyrirtækja þar við störf. Flestir vinnustaðirnir eru á höfuðborgarsvæðinu. Vinnustaðaheimsóknir á stærri byggingarstaði fólust einkum í því að ná tali af aðalverktaka og fá nafnalista með öllum undirverktökum og starfsmönnum á byggingarstað.

Talsvert var um að óskráðir einstaklingar kæmu í ljós í kjölfar vinnustaðaeftirlitsins, tvær starfsmannaleigur voru skráðar í kjölfar eftirlitsferða og tvö þjónustufyrirtæki komu upp á yfirborðið. Að minnsta kosti ein starfsmannaleiga fór í „tiltekt" sem tengist átakinu. Ýmsar aðrar vísbendingar eru um að starfsmannaleigur og þjónustufyrirtæki hafi vandað sig meira við skráningu vegna átaksins, segir á vef félagsmálaráðuneytisins. Af þeim 30 fyrirtækjum sem voru beitt dagsektum eru mál sumra þeirra í innheimtu um þessar mundir.

Þrátt fyrir að átaksverkefninu sé lokið segir Gissur nauðsynlegt að hafa í huga að eftirrekstur Vinnumálastofnunar um skráningar erlendra starfsmanna sé ekki verkefni sem tekur enda. Stöðugt bætist við nýir einstaklingar og sem dæmi nefnir hann fjölda umsókna um kennitölur til Þjóðskrár. Í október voru þær 1.375, í nóvember 789 og í desember voru þær 516.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×