Innlent

Frjálslyndir á norðausturlandi styðja nýjan meirihluta

Nýr meirihluti í Reykjavík.
Nýr meirihluti í Reykjavík.

Hin ýmsu félög tengd stjórnmálaflokkunum hafa sent frá sér yfirlýsingar þar sem nýr meirihluti í borginni nýtur annaðhvort stuðnings eða hann er fordæmdur. Kjördæmisráð Frjállyndaflokksins í norðausturkjördæmi lýsir yfir stuðningi í yfirlýsing.

„Kjördæmisráð Frjálslynda Flokksins í norðausturkjördæmi lýsir hér með yfir stuðningi við nýjan borgarstjórnarmeirihluta og borgarstjóra í málefnum Reykjavíkurflugvallar. Um gífurlegt hagsmuna- og öryggismál er að ræða fyrir alla landsmenn, og ljóst að þegar fjallað er um framtíð flugvallarins verður að taka fullt tillit til þessara hagsmuna. Bent skal á að Reykjavíkurflugvöllur er ein forsenda þess að Reykjavík rísi undir nafni sem höfuðborg allra landsmanna, og þess utan er hann mikilvægasti sjúkraflugvöllur landsins vegna nálægðar hans við stærstu og fullkomnustu sjúkrahús okkar. Samkvæmt yfirlýstri stefnu hins nýja meirihluta er ljóst að verndun þessara hagsmuna er einmitt ætlun hans. Ennfremur er ánægjulegt að stefnt sé nú að varðveislu hinnar gömlu ásýndar miðbæjar Reykjavíkur, en þar er um að ræða menningarverðmæti allra landsmanna. Loks er mikilsverður einnig sá árangur að stefnumál Frjálslynda Flokksins almennt fái nú brautargengi í málefnum borgarinnar."

Stjórn Varðar fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík fagnar einnig nýjum meirihluta.

„Stjórn Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík fagnar nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur í samstarfi við Ólaf F. Magnússon og F-listann. Stjórnin lýsir einnig yfir stuðningi við málefnasamninginn sem þegar hefur verið kynntur. Þá fagnar stjórnin því sérstaklega að nýr meirihluti mun leggja fram tillögu um lækkun fasteignaskatta, sem koma mun öllum borgarbúum til góða, á fundi í borgarstjórn næstkomandi fimmtudag."

Ungir Vinstri grænir í Reykjavík hafa einnig sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins.

„Ung vinstri græn í Reykjavík lýsa yfir vantrausti á nýjasta

meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur.Við teljum það þvert á vilja

borgarbúa og raunar vanvirðing við lýðræðið að oddviti lista sem

hlaut innan við 10% atkvæða borgarbúa í síðustu

borgarstjórnarkosningum, njóti nú aðeins 3% stuðning samkvæmt nýlegri

skoðanakönnun og ekki einu sinni stuðnings hjá eigin varamönnum sé

orðinn borgarstjóri. Slíkt bendir augjóslega til þess að valdafýsn

sé tekin fram yfir hagsmuni Reykvíkinga.

Tíð meirihluta- og borgarstjóraskipti undanfarinna mánaða hafa rúið

borgarstjórnina í heild sinni öllu trausti og það er miður. Á meðan

borgarfulltrúar eru uppteknir af pólitísku plotti og meirihlutaskiptum

þá er enginn að stjórna borginni en það er merki um ótrúlegt

ábyrgðarleysi. Réttast væri, þótt það sé annmörkum háð, að breyta

lögum um sveitastjórnarkosningar

og boða til nýrra kosninga svo borgarstjórn fái endurnýjað umboð frá kjósendum og byggi upp það traust sem hún hefur tapað."


 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×