Innlent

Með hass milli rasskinnanna

MYND/KK

Lögreglan á Akureyri í samvinnu lagði hald á nokkurt magn fíkniefna í þremur málum um helgina og naut stuðnings sérsveitarinnar á Akureyri. Fram kemur í tilkynningu að lagt hafi verið hald á tæplega 250 grömm af hassi auk lítilræðis af kókaíni og sterum.

Á föstudag handtók lögreglan tvo menn og reyndist annar þeirra hafa 13 grömm af hassi á sér sem hann hafði falið á milli rasskinnanna. Í framhaldi fór lögreglan í tvær húsleitir og fundust 200 grömm af hassi á dvalarstað annars mannsins. Mennirnir tveir eru grunaðir um að hafa ætlað að selja og dreifa efnunum á Akureyri.

Auk ofangreinds máls komu tvö önnur fíkniefnamál til kasta lögreglunnar þar sem hald var lagt á um 30 grömm af hassi í tveimur húsleitum auk smáræðis af kókaíni og sterum. Þrír menn voru handteknir og játuðu tveir þeirra að hafa ætlað efnin til sölu.

Auk fíkniefnanna var lagt hald á peninga sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×