Össur býður Birni Inga í Samfylkinguna 20. janúar 2008 23:33 MYND/Anton
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra býður Birni Inga Hrafnssyni, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, að ganga til liðs við Samfylkinguna vegna þeirra deilna sem eru innan Framsóknarflokksins. Í pistli sem Össur ritar á heimasíðu sína í kvöld fjallar hann um þau átök sem blossað hafa upp á milli Björns Inga og Guðjóns Ólafs Jónssonar, fyrrverandi þingmanns Framsóknarflokksins. Átökin má rekja til bréfs sem Guðjón Ólafur ritaði framsóknarmönnum í Reykjavík þar sem hann ýjaði að því að frambjóðendur flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2006 hefðu fengið föt fyrir hundruð þúsunda á kostnað flokksins. Í kjölfar þess lýsti Björn Ingi því yfir að hann íhugaði að hætta að starfa fyrir Framsókn. Guðjón Ólafur sagði svo í dag í Silfri Egils að hann væri með mörg hnífasett í bakinu eftir rýtingsstungur Björns Inga og að Björn Ingi hefði skilið eftir sig sviðna jörð í flokknum. Össur segist hafa staðið í þeirri meiningu að Björn Ingi hefði bjargað Framsóknarflokknum tvisvar, fyrst með því að komast inn í borgarstjórn og svo með endurreisn sinni með því að slíta samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í borginni. ,,Nú sýnist mér að Framsókn sé að takast það sem Sjálfstæðisflokknum tókst ekki þrátt fyrir aðdáunarverða elju - að klína á hann drullu með þeim hætti að honum er varla lengur líft í svona aumum flokki," segir Össur. Hann bætir við: ,,Í húsi Samfylkingarinnar eru margar vistarverur, og fyrir mína parta segi ég við Björn Inga: Sértu velkominn í mín hús - og taktu eins marga með þér og þú getur. Borgarfulltrúinn á nefnilega margt sameiginlegt með stefnu Samfylkingarinnar, og nægir að nefna stórmál einsog Evrópu og evru, fyrir utan margt annað. Samfylkingin á honum skuld að gjalda eftir að hann fleytti henni í úrslitastöðu í Borginni, og verður að taka vel á móti honum kjósi hann að gera alvöru úr því að axla sín skinn og leita uppi nýja förunauta einsog Rikki í Höfnum." Bætir Össur því svo við að Margrét Sverrisdóttir, fulltrúir Frjálslyndra og óháðra í borgarstjórn, eigi líka að ganga til liðs við Samfylkinguna. ,,Við erum vön að taka á móti fólki, og gerum það vel. Við höfum sjálf öll verið í hlutverki flóttafólks á einhverjum tíma ferils okkar, og vitum, hvernig á að rétta hjálpandi hönd þegar menn söðla um. En það er erfitt, og það þarf kjark. Hefur Björn Ingi og hans lið þann kjark? Það kemur í ljós," lýkur ráðherra pistli sínum.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira