Skilorðsbundið fangelsi og sekt fyrir bókhaldsbrot 16. janúar 2008 12:03 MYND/Ingólfur
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 16,5 milljóna króna fyrir ýmis bókhaldsbrot í tengslum við starf hans sem framkvæmdastjóri og stjórnarformaður einkahlutafélags.Nánar tiltekið var um að ræða brot á lögum um virðisaukaskatt, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, lögum um tekju- og eignaskatt, lögum um tekjustofna sveitarfélaga og lögum um bókhald.Manninum var gefið að sök að hafa vantalið virðisaukaskatt og skattskylda veltu í virðisaukaskattsskýrslum til yfirvalda á árinu 2004 og tvo mánuði árið 2005. Samtals námu þau vanskil tæpum 4,2 milljónum króna.Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að standa skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins, samtals að fjárhæð rúmlega 2,2 milljónir króna.Loks var hann ákærður fyrir að hafa ekki talið fram í skattframtali sínu vegna ársins 2004 fjármuni sem hann hafði fengið greidda úr einkahlutafélaginu. Með þessu vantaldi hann tekjuskatts- og útsvarsstofn sinn um rúmar 6,7 milljónir króna.Maðurinn játaði brot sín skýlaust en hann hafði áður verið dæmdur fyrir skjalafals í Danmörku. Að teknu tilliti til þessa þótti fjögurra mánaða dómur, sem skilorðsbundinn er til tveggja ára, hæfileg refsing. Greiði maðurinn ekki sektina innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þarf hann að sæta sex mánaða fangelsi.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Fleiri fréttir Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sjá meira