Innlent

Telur álit mannréttindanefndar SÞ ekki kalla á lagabreytingu

Geir H. Haarde forsætisráðherra telur nýlegt álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í máli tveggja sjómanna ekki gefa sérstakt tilefni til lagabreytinga hér á landi. Þetta kom fram í máli hans í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, gerði álit mannréttindanefndarinnar að umtalsefni sínu og benti á að samkvæmt því gætti íslenska fiskveiðikerfið ekki jafnræðis gagnvart þegnum landsins og hefði stjórnvöldum verið falið að skoða málið.

Vísaði Guðjón Arnar meðal annars til orða Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, sem sagði að Íslendingar gætu ekki ætlast til þess að aðrir virtu mannréttindi færu þeir ekki sjálfir eftir áliti mannréttindanefndar. Hins vegar hefði Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagt að álitið kallað ekki á neinar lagabreytingar.

Innti Guðjón Arnar forsætisráðherra eftir skoðun hans áliti mannréttindanefndarinnar.

Rökstuðningur mannréttindanefndar fátæklegur

Geir H. Haardae sagði álitið athyglisvert en benti á að það væri ekki bindandi að þjóðarrétti fyrir Íslendinga. Þá væru engar vísbendingar veittar í álitinu hvað íslensk stjórnvöld ættu að skoða. Enn fremur teldi hann rökstuðning mannréttindanefndarinnar fátæklegan en sagði að farið yrði nákvæmlega yfir málið.

Benti hann enn fremur á að gert væri ráð fyrir því í stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins að farið yrði yfir fiskveiðikerfið og það mætti hugsanlega flétta saman við yfirferðina á áliti mannréttindanefndarinnar. Hann teldi hins vegar að álitið gæfi ekki sérstakt tilefni til lagabreytinga á Íslandi.

Guðjón Arnar sagði augljóst að ágreiningur væri um það hvort taka þyrfti tillit til álitsins og breyta lögum vegna þess. Staðan væri sú að alþjóðastofnun hefði sagt að núverandi lagasetning stæðist ekki jafnræðisreglu um að allir fái að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa sér. Því væri hann óssamála áliti forsætisráðherra.

Fram kom í máli Geirs H. Haarde að sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis myndi fara yfir málið í vikunni og kalla til alla helstu sérfræðinga landsins í þessum málum. Það ætti hins vegar ekki að rjúka upp til handa og fóta og kalla eftir lagabreytingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×