Innlent

Saksóknari í Texas segir Aron Pálma hættulegan börnum

Aron Pálmi Ágústsson.
Aron Pálmi Ágústsson.

Mike Trent aðstoðar saksóknari í Harris sýslu í Texas er maðurinn sem ákærði Aron Pálma Ágústsson fyrir kynferðisbrot á sínum tíma og fékk hann dæmdan til tíu ára vistar í unglingafangelsi. Aron Pálmi var þá þrettán ára gamall. Trent skrifaði fyrir nokkrum dögum færslu á heimasíðuna www.icelandweatherreport.com þar sem hann lýsir sinni hlið málsins og fullyrðir að Aron sé sekur um fleiri og mun grófari brot en það sem hann var dæmdur fyrir.

Á síðunni hafði fólk verið að ræða um mál Arons af nokkurri samúð í hans garð og segist Trent hafa séð sig knúinn til að lýsa málinu eins og það blasi við honum. „Þessi skrif endurspegla eina mestu afbökun á raunveruleikanum sem ég hef séð," segir Trent. „Það vill svo til að ég er saksóknarinn sem sendi „aumingja" Aron í fangelsi í 10 ár. Þau hefðu átt að vera 40."

Aron Pálmi segir í samtali við Vísi að ásakanir Trent um aðhann hafi misnotað fleiri drengi séu helber lygi. Skjöl sem sýni fram á annað séu fölsuð og að hann hafi aldrei viðurkennt önnur brot en hann hafi verið dæmdur fyrir.

Trent segir að þrátt fyrir að Aron hafi aðeins verið sakfelldur fyrir eitt brot, að framkvæma munnmök á sex ára dreng , hafi hann ítrekað misnotað að minnsta kosti þrjá aðra drengi. Hann segir einnig að þó að Aron hafi aðeins verið ákærður fyrir munnmök með drengnum hafi misnotkunin verið mun víðtækari. Þetta hafi komið fram í vitnisburði drengsins. Að sögnTrent hótaði Aron drengnum því að ef hann myndi segja frá samskiptum þeirra myndi Aron myrða fjölskyldu hans.

Þá fullyrðir saksóknarinn að Aron hafi misnotað þrjá aðra drengi. Einn hafi verið nágranni hans sem hann misnotaði á grófan máta á löngu tímabili, frá því drengurinn var fimm ára og þar til hann varð ellefu ára gamall. Þetta játaði Aron í viðtölum við sálfræðinga í unglingafangelsinu og Vísir hefur undir höndum skjöl sem virðast staðfesta það. Trent segir að tvö fórnarlambanna hafi verið yngri en sjö ára og annað tíu til ellefu ára. Ennfremur segir Trent að í téðum viðtölum hafi komið í ljós að Aron hafi sýnt mjög fá merki betrunar og að hann hafi viðurkennt að bera ofbeldishneigðar hugsanir í brjósti gagnvart ungum börnum. „Hann var metinn margsinnis og niðurstöður voru á þá leið að hann væri hættulegur barnaníðingur."

Stoltur af því að hafa sótt hann til saka
Mike Trent.

„Ef þessi atriða eiga við þegar talað er um „læknisleiki" í ykkar landi þá óttast ég um öryggi barna ykkar," segir Trent á heimasíðunni. „Stuðningsmönnum Arons Pálma hefur greinilega tekist að villa rækilega um fyrir ykkur........Aron er ekki fórnarlambið í þessu máli. Ég er stoltur af því að hafa sótt hann til saka og sé aðeins eftir því að mér hafi ekki tekist að fá hann dæmdann til lengri tíma."

Þegar Vísir hafði samband við skrifstofu saksóknara í Harris sýslu í Texas staðfesti Mike Trent að hann hefði skrifað færsluna á síðuna. Aðspurður hvers vegna hann hefði ekki ákært Aron fyrir hin brotin sem hann minnist á segir Trent að það hefði ekki verið talið skipta höfuðmáli. Í fyrsta lagi hefði það ekki lengt dóminn að neinu ráði, og í öðru lagi þá hafi sumar ásakananna borist of seint til þess að hægt væri að búa þau til ákæru. Trent ítrekar samt að ásakanirnar hafi komið fram við seinni réttarhöldin þegar ákveðið var hvert Aron yrði sendur og í hve langan tíma. Hann fullyrðir að við þau réttarhöld hafi dómari og kviðdómur lagt trúnað á þessar sögur. Einnig bendir saksóknarinn á að Aron Pálmi hafi viðurkennt þessi brot sín í viðtölum við sálfræðinga. „Ég er viss um að þetta kemur ekki fram í bókinni hans," segir Mike Trent og á þar við bók Arons Pálma „Enginn má sjá mig gráta," sem kom út nú fyrir jólin.

Skjölin sem Trent hefur sent Vísi eru dagsett í október 2000 og 2001 og þar kemur meðal annars fram að Aron viðurkennir að hann beri afbrigðilegar kynferðislegar hugsanir í brjósti í garð barna á aldrinum sex til tíu ára. Þá er brotum Arons lýst í smáatriðum í skjölunum. Einnig er þess getið að hegðun Arons í fangelsinu fram að þeim tíma hafi ekki verið til fyrirmyndar og að hann hafi fimmtíu sinnum gerst brotlegur við reglur stofnunarinnar. Þá er einnig sagt frá því í skjölunum að Aron hafi árið 1997 gengist undir lygamælispróf þar sem hann var spurður út í brot sitt, hvort hann hefði brotið á fleirum og hvort hann hefði hótað fórnarlambi sínu. Lygamælirinn leiddi í ljós að Aron hefði ekki hótað drengnum og að fórnarlömbin væru ekki fleiri. Síðar viðurkenndi Aron hins vegar að hafa svindlað á lygamælinum og sagt ítrekað ósatt í prófinu.

Þegar saksóknarinn er spurður að því hvort hann telji að börnum stafi hætta af Aroni Pálma svarar hann strax: „Já."

Lygar og fölsuð skjöl
Skjölin sem Mike Trent sendi Vísi.

Aron Pálmi Ágústsson sagðist í samtali við Vísi hafa séð færslu Trent á vefnum. „Níutíu prósent af því sem hann segir þarna er lygi og rógburður. Ég hef aldrei reynt að breiða yfir það að það sem ég gerði var rangt. En að segja að ég hafi misnotað fleiri drengi og að misnotkun mín á drengnum sem ég var dæmdur fyrir að misnota hafi verið víðtækari en segir í dómnum er rangt í alla staði." Aron segist ekki skilja hvað Trent gangi til en augljóst sé að hann sé með hann á heilanum. „Þetta er maður sem hefur svarið þess dýran eið að gera líf mitt að lifandi helvíti," segir Aron og óskar þess að þessum ofsóknum fari að linna.

Að sögn Arons er vitnisburður hans sem fram kemur í skjölunum sem saksóknarinn sendi Vísi búinn til af sálfræðingnum sem skrifaður er fyrir honum. Hún hafi auk þess orðið uppvís að meinsæri í réttarhöldunum yfir Aroni því það sem hún sagði í vitnastúkunni var í hróplegu ósamræmi við það sem hún hafði áður sagt verjanda Arons. Þá var hún á þeirri skoðun að Aron væri ekki hættulegur maður en annað hljóð var komið í strokkinn í réttinum þegar ákvarða átti refsingu hans. „Ég hugleiddi að sækja hana til saka fyrir þessar lygar, en mér var sagt að ég ætti ekki möguleika á því að vinna mál gegn henni þar sem ég væri dæmdur kynferðisbrotamaður. En það sem haft er eftir mér í þessum skjölum sagði ég aldrei."

Hann segir að málið með lygamælinn sé af svipuðum meiði. „Ég var fyrsta barnið í sögu Texas sem var látið gangast undir lygamælispróf. Ég var spurður hvort ég hefði hótað drengnum með byssu, hvort að fórnarlömbin væru fleiri og hvort ég hefði kynferðislegar tilfinningar í garð barna. Prófið sýndi eindregið fram á að allar þessar ásakanir væru ekki á rökum reistar. Seinna var mér sagt að ef ég myndi ekki viðurkenna að ég hefði logið í prófinu yrði mér umsvifalaust stungið í fangelsi fyrir fullorðna. Ég trúði þeim og varð við þessum kröfum. En hvernig hefði ég, barn, átt að geta platað lygamælinn?," segir Aron.

Aron segist gera sér fullkomlega grein fyrir þeim afleiðingum sem brot hans hefur haft á fórnarlambið og aðra. „Það sem ég gerði var rangt og ég vissi það á sínum tíma, en ég var bara barn og ég hafði ekki hugmynd um að ég myndi fara í fangelsi í tíu ár fyrir þetta. Ég sé eftir þessu og ég vildi að ég gæti tekið þetta til baka." Aron bendir einnig á að hann hafi verið í meðferðum í þrjú ár eftir að hann losnaði úr fangelsinu. Á þeim tíma hafi hann fjórum sinnum gengist undir lygamælispróf og í öllum tilfellum hafi hann staðist þau próf án nokkura vandræða.

„Ég veit ekki hve langt þetta mál á að ganga og ég óska þess að þessu fari að ljúka," segir Aron Pálmi Ágústsson.


Tengdar fréttir

Forviða á skrifum saksóknara

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segist forviða á skrifum Mikes Trent saksóknara í máli Arons Pálma Ágústssonar.

Aron Pálmi ætlar að lögsækja Trent saksóknara

Aron Pálmi Ágústsson segist í samtali við Vísi vera staðráðinn í því að sækja Mike Trent, aðstoðar saksóknara í Texas til saka fyrir ofsóknir gegn sér. Trent heldur því fram að Aron Pálmi hafi brotið gegn fleiri börnum en hann var dæmdur fyrir á sínum tíma og í samtali við Vísi sagði hann að börnum stæði ógn af honum. Trent sendi Vísi meðal annars gögn úr málinu og vitnisburði sálfræðinga sem hann segir sýna fram á að Aron hafi viðurkennt fleiri brot.

Óttast ekki þótt Aron Pálmi lögsæki

Mike Trent, saksóknari í máli Arons Pálma Ágústssonar, segist ekki óttast þótt Aron Pálmi ákveði að stefna honum. Hann segist hafa fulla heimild til að birta gögn í máli Arons Pálma.

Saksóknaranum misbýður aðdáun á Aroni Pálma

Mike Trent, saksóknari í máli Arons Pálma Ágústssonar, misbýður sú aðdáun sem honum hefur fundist Aron hafa hlotið hér á landi. Í bréfi sem hann sendi ritstjórn Vísis í kjölfar frétta okkar af málinu segir hann það vanvirðingu við fórnarlömb Arons að á hann sé litið sem nokkurskonar hetju á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×