VG vill leggja niður Varnarmálastofnun 19. desember 2008 15:45 Steingrímur og Katrín.
Vinstri hreyfingin grænt framboð vill leggja niður Varnarmálastofnun og að verkefnum hennar verði sinnt í utanríkisráðuneytinu, Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð og hjá Flugstoðum. Vinstri grænir telja að þetta gæti sparað allt að 700-800 milljónir króna strax á næsta ári. Þetta kemur fram í áherslum Vinstri grænna í skatta og ríkisfjármálum sem þau Steingrímur J. Sigfússon formaður flokksins og Katrín Jakobsdóttir varaformaður kynntu fyrir blaðamönnum í dag.Vilja koma í veg fyrir niðurskurð í velferðarþjónustunni Vinstri grænir segja að með því að kynna áherslur sínar vilji þau að sýnd verði ráðdeild í ríkisrekstri án þess að höggvið verði nærri velferðarþjónustunni. Vinstri grænir leggja jafnframt til að horfið verði frá skipulagsbreytingum í heilbrigðis- og tryggingamálum, hætt verði við stofnun Sjúkratryggingastofnunar og þess í stað verði starfsemi Tryggingastofnunar endurskipulögð með heildstæðum hætti. Telja Vinstri grænir að sparnaður af þessu gæti orðið 250 milljónir á næsta ári. Jafnframt að hætt verði við ýmsar fyrirhugaðar skipulags- og kerfisbreytingar sem muni að óbreyttu valda nokkrum kostnaði og auka álag starfsfólks á erfiðum tímum. Þá vilja Vinstri grænir að hætt verði við þátttöku á heimssýningu í Kína sem kosti um 100 milljónir króna. Þá vilja Vinstri grænir breyta fyrirkomulagi á dagpeningargreiðslum ráðherra, þingmanna og embættismanna, þannig að í stað flestra dagpeningargreiðslna á ferðalögum kæmi endurgreiðsla kostnaðar með þaki. Loks vilja Vinstri grænir frekari sparnað í yfirstjórn ráðuneyta og opinberra stofnana.Vilja 14% fjármagnstekjuskatt Þá munu Vinstri grænir leggja fram þrjú frumvörp til breytinga í skattamálum sem öll miða bæði að því að afla ríkissjóði nokkurra viðbótartekna og innleiða meira réttlæti og sanngirni í skattkerfinu. Það eru, í fyrsta lagi frumvarp um þriggja þrepa álag á hærri laun, í öðru lagi frumvarp um hækkun fjármagnstekjuskatts í 14%. Í þriðja lagi frumvarp um að maður sem hafi 10 milljónir króna eða meira í árlegar fjármagnstekjur en enga eða óverulega launaða vinnu með höndum skuli reikna sér endurgjald eins og um hálft starf væri að ræða við fjármálaumsýslu fyrir óskyldan eða ótengdan aðila. Hafi maður 20 milljónir króna eða meira í árlegar fjármagnstekjur skuli hið reiknaða endurgjald miðast við fullt starf.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira