Davíð og Golíat berjast í Ossetíu 10. ágúst 2008 18:37
Í stríði Georgíumanna við Rússa hefur Davíð svo sannarlega verið að berjast við Golíat. Hernaðaryfirburðir Rússa eru slíkir að þeir gátu hæglega leyft sér að hafna öllum hugmyndum um vopnahlé þar til Georgíumenn höfðu dregið herlið sitt til baka og grátbeðið um friðarviðræður. Rússar voru staðráðnir í að veita Georgíumönnum ærlega ráðningu fyrir að hafa ætlað að ganga milli bols of höfuðs á uppreisnarmönnum í Suður-Ossetíu. Nú þegar Georgíumenn virðast hafa gefist upp, þótt óformlega sé, virðist sem tilraun þeirra til að tryggja yfirráð yfir Suður-Ossetíu hafi farið endanlega út um þúfur. Rússar fagna því enda hafa þeir um langan aldur ráðið því sem þeir vilja í Suður-Ossetíu. En það er ekki aðeins umhyggja fyrir Ossetum sem hvetur Rússa í þessum átökum. Georgía hefur á undanförnum árum horft miklu meira í austur en vestur. Georgía vill ganga í NATO og Evrópusambandið - og er þegar í biðstofunni hjá NATO. Bandaríkjastjórn hefur mjög ræktað sambandið við Mikheil Saakashvili forseta undanfarin ár og stutt stjórn hans á margan hátt, meðal annars hernaðarlega. Þetta hugnast Rússum engan veginn - þeir kæra sig ekkert um NATO í bakgarðinum hjá sér - og því má segja að samskiptin milli Washington og Moskvu varðandi Georgíu markist enn af kulnandi glæðum kalda stríðsins. Hernaðarlega hafa Georgíumenn ekkert að segja í Rússa. Þeir eru með lítinn her og illa búinn vopnum - ekki síst í samanburði við stóra björninn í austri, eins og sjá má á þessum samanburði. Hvar sem litið er hafa Rússar gríðarlega yfirburði: í mannafla, fjölda skriðdreka, fjölda brynvarðra vagna til að flytja hermenn og vopn, orrustuflugvéla og þungavopna af öllu mögulegu tagi. Það er því varla hægt að komast að annarri niðurstöðu en að Georgíumenn hafi misreiknað sig alvarlega ef þeir héldu að þeir gætu tuskað Ossetíumenn til án þess að Rússar tækju í taumana.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Fleiri fréttir „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Sjá meira