Innlent

Sex hafa verið handteknir í tengslum við sinubrunana

Sex ungir menn hafa verið handteknir í tengslum við sinubruna í Hafnarfirði síðustu tvo sólarhringana. Í nótt brann stórt skógræktarsvæði við Hvaleyrarvatn eftir að kveikt var í og er talið að tjónið nemi fimm til tíu milljónum.

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um klukkan tvö í nótt um sinueld sunnan við Hvaleyrarvatn. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn og tóku um fimmtíu manns þátt í aðgerðunum þegar mest var. Um fjórar klukkustundir tók að slökkva eldinn. Skógrækt Hafnarfjarðar hefur um árabil unnað að uppgræðslu og ræktun á svæðinu. Þar á bæ segja menn að að svæðið sem hafi brunni sé hátt í fimm hektarar. Trjánum þar hafi verið plantað fyrir um fimmtán árum. Um fimm þúsund plöntur brunnu í nótt og nemur tjónið á bilinu fimm til tíu milljónum króna.

Lögreglan handtók í nótt þrjá tæplega tvítuga menn sem voru í bíl í grenndinni og eru þeir grunaðir um að tengjast brunanum. Þeir hafa verið yfirheyrir í dag. Aðfaranótt mánudags var annar stór sinubruni á svæðinu. Þá var einn handtekinn í bíl á vettvangi og í gær voru svo tveir til viðbótar handteknir í tengslum við þann bruna. Auk þeirra hafa fjölmargir verið yfirheyrðir. Lögreglan segir hluta þeirra handteknu hafa játað að hafa tekið þátt í að kveikja í. Allir piltarnir eru úr Hafnarfirði og hafa nokkrir þeirra komist í kast við lögin áður. Grunur er um að ungu mennirnir tengist fleiri brunum á svæðinu. Lögreglan rannsakar meðal annars hvort þeir tengist íkveikju í hesthúsi við Sörlaskjól ofan við Hafnarfjörð fyrr í mánuðinum en þá var átta hrossum bjargað.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×