Erlent

Bretar heim frá Írak á næsta ári?

Óli Tynes skrifar
Barist í Írak.
Barist í Írak. MYND/AP

Varnarmálaráðherra Bretlands gaf í skyn í dag að breskir hermenn í Írak verði kallaðir heim á næsta ári. Ekki fá þeir þó langt frí því um leið verður væntanlega fjölgað í breska herliðinu í Afganistan.

Bretar hafa nú 4000 hermenn í Írak og 8000 í Afganistan. Des Browne varnarmálaráðherra sagði að það væri komið að kaflaskiptum í Írak. Hann benti á að Íraski herinn yrði stöðugt öflugri og hefði með aðstoð Bandaríkjamanna og Breta unnið sigur á uppreisnarmönnum í Basra.

Browne sagði að lífið hafi breyst mjög til hins betra fyrir íbúa í suðurhluta Íraks. Þar sé búið að opna kaffi- og veitingahús, konur geti gengið um götur án þess að vera með slæður og fjárfestar séu reiðubúnir að leggja fé í olíu, gas og stálframleiðslu.

Aðra sögu væri hinsvegar að segja í Afganistan. Þar sé margra ára barátta framundan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×