Hæstiréttur sýknar lögreglumenn eftir bumbuslag 6. nóvember 2008 19:58 Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint
Hæstiréttur sýknaði í dag tvo lögreglumenn frá Selfossi af tæplega 16 milljón króna skaðabótakröfu frá konu sem heldur því fram að örorka sem hún hlaut eftir slys árið 2003 megi rekja til fyllerísláta lögreglumannanna. Héraðsdómur hafði áður sýknað mennina af skaðabótakröfu konunnar og staðfesti Hæstiréttur þann dóm í dag. Slysið varð á árshátíð starfsmanna embættis Sýslumanns á Selfossi árið 2003. Konan sem um ræðir er maki eins starfsmanns sýslumannsembættissins. Málsatvik voru á þá leið að lögreglumennirnir tveir, en þeir báru báðir fyrir dómi að þeir hefðu verið töluvert ölvaðir þegar þetta átti sér stað, gerðu sér það að leik að reka bumbur sínar í hvorn annann. Að sögn lögreglumannanna er þetta kallað "bumbuslagur". Konan segir að þegar lögreglumennirnir voru í bumbuslagnum hafi hún skyndilega fundið þungt högg dynja á hægri síðu sinni, við mjöðm. Hún hafi þá skollið í jörðina með þeim afleiðingum að úlnliðurinn brotnaði. Konan segir að einn lögreglumaðurinn hafi rekið bumbu sína í hinn með þeim afleiðingum að hann datt á hana. Úlnliðsbrotið hefur haft þær afleiðingar að konan er nú 85% öryrki. Daginn eftir slysið komu báðir lögreglumennirnir á sjúkrahúsið þar sem konan lá, færðu henni blómvönd og báðust afsökunar á hegðun sinni kvöldið áður. Þá beitti annar þeirra sér fyrir því að henni yrði veittur styrkur úr félagasjóði löreglumanna í Árnessýsu. Fyrir dómi báru þeir hins vegar að þeir bæru enga ábyrgð á því að konan hefði fallið í jörðina. Þar sem vitni gátu ekki gefið skýra mynd af því sem gerðist var eindreginn neitun lögreglumannanna tveggja tekin fram yfir fullyrðingu konunnar um að bumbuslagur lögreglumannana hefði orskað slysið.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira