Erlent

Segjast hafa fundið aðferð til að drepa HIV-veiruna

Læknar við rannsóknarstofu Læknaháskólans í Texas segja að þeir hafi hugsanlega fundið upp aðferð til að lækna HIV-smit og þar með alnæmi.

Samkvæmt frásögn í bandaríkum fjölmiðlum hafa læknarnir fundið upp aðferð til að drepa HIV-veirunu. Um er að ræða aðferð sem gefur ónæmiskerfi líkamans möguleika á að ráðast á veikleika í HIV-veirunni og eyða henni.

Prófanir á þessu á tilraunadýrum hafa þegar gefið góða raun. Á næstunni munu hefjast prófanir á mönnum og ef þær ganga vel er ætlunin að hefja framleiðslu á mótefni gegn veirunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×