Stjórnarformaður Nýja Kaupþings breytir ekki launum bankastjórans 23. október 2008 14:45 Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri.
Stjórnarformaður Nýja Kaupþings segist ekki ætla að breyta launakjörum bankastjórans, þrátt fyrir gagnrýni. Upplýst hefur verið að laun Finns Sveinbjörnssonar, nýráðins bankastjóra, eru 1950 þúsund krónur á mánuði. Litlu hærri en laun útvarpsstjóra, sem hingað til hefur verið hæst launaði forstjóri ríkisfyrirtækis. Stjórnendur Nýja Glitnis og Nýja Landsbankans hafa ekki viljað upplýsa um laun bankastjóranna. Bæði félagsmálaráðherra og viðskiptaráðherra hafa gagnrýnt þessi laun og sagt að þau þurfi að endurskoða. Þessu er Ólafur Hjálmarsson, stjórnarformaður Nýja Kaupþings, ósammála. „Við erum náttúrulega búin að gera ráðningasamning við nýjan bankastjóra og munum standa við hann," segir Ólafur. Hann bendir á að það sé ekki auðvelt að fá menn, við svona erfiðar aðstæður, í svona krefjandi starf. Ólafur segir að þrátt fyrir að launin séu ef til vill frábrugðin því sem gerist hjá embættismönnum að þá séu þessi launakjör ekki frábrugðin því sem gerist hjá öðrum ríkisfyrirtækjum. „Og þá eru menn að tala um hlutafélög í eigu ríkisins," segir Ólafur. Hann bendir á að inni í launum bankastjórans séu öll hlunnindi hans og fríðindi. Ólafur segir að stjórn Kaupþings sé sjálfstæð og beri ábyrgð á eigin störfum. „Ég get ekki haft neina skoðun á því sem að stjórnmálamenn eru að segja um þetta," segir Ólafur. Hann segir ekki koma til greina að breyta samningum sem hafi verið gerðir við bankastjórann. „Þá frekar mun ég bara taka mína ábyrgð," segir Ólafur í samtali við Vísi.
Tengdar fréttir Há laun nýju bankastjóranna koma á óvart „Það kom mér á óvart hvað laun bankastjóranna eru há, þó ég hafi ekki enn heyrt um laun bankastjóra Landsbanka og Glitnis. En fréttir af launum Kaupþingsbankastjórans benda til þess að þau séu hærri en búist var við,“ segir Björgvin Guðni Sigurðsson viðskiptaráðherra um laun nýju bankastjóranna. 23. október 2008 13:36 Félagsmálaráðherra vill lækka laun nýrra bankastjóra Jóhanna Sigurðardóttir segist vera þeirrar skoðunar að of langt hafi verið gengið við ákvörðun um kjör nýrra bankastjóra. Ekki síst þegar kjararýrnun er framundan. Hún segist hafa viljað sjá að þar hefði verið farið varlegar af stað en raun ber vitni nú þegar þörf sé á að gæta hófs. 23. október 2008 12:13 Mest lesið Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Erlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Gosmóðan heldur áfram Innlent Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Sjá meira
Há laun nýju bankastjóranna koma á óvart „Það kom mér á óvart hvað laun bankastjóranna eru há, þó ég hafi ekki enn heyrt um laun bankastjóra Landsbanka og Glitnis. En fréttir af launum Kaupþingsbankastjórans benda til þess að þau séu hærri en búist var við,“ segir Björgvin Guðni Sigurðsson viðskiptaráðherra um laun nýju bankastjóranna. 23. október 2008 13:36
Félagsmálaráðherra vill lækka laun nýrra bankastjóra Jóhanna Sigurðardóttir segist vera þeirrar skoðunar að of langt hafi verið gengið við ákvörðun um kjör nýrra bankastjóra. Ekki síst þegar kjararýrnun er framundan. Hún segist hafa viljað sjá að þar hefði verið farið varlegar af stað en raun ber vitni nú þegar þörf sé á að gæta hófs. 23. október 2008 12:13