Aldrei fleiri börn í leikskólum 30. apríl 2008 09:22
Tæplega 17.500 börn voru í leikskólum landsins í desember í fyrra og hafa aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar. Fjölgaði leikskólabörnum um 230 eða 1,3 prósent frá desember árið 2006. 95 prósent þriggja og fjögurra ára barna eru í leikskóla, tæpt 91 prósent tveggja ára barna en tæplega þriðjungur eins árs barna. Viðvera barnanna lengist Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að viðvera barna í leikskólum er stöðugt að lengjast. Árið 1998 voru rúmlega 40 prósent barna í leikskólum skráð í a.m.k. átta tíma viðveru en fjórum árum síðar var þetta hlutfall komið í tæp 62 prósent. Árið 2007 reyndust svo tæp 78 prósent allra barna í leikskólum skráð í a.m.k. 8 tíma daglega viðveru. Hærra hlutfall drengja en stúlkna er skráð í lengri viðveru. Það skal þó tekið fram að þetta er sú vistun sem foreldrar hafa tryggt sér en ekki er óalgengt að foreldrar sæki börn sín áður en dvalartími þeirra er útrunninn. Einkareknum leikskólum fjölgar Alls störfuðu 270 leikskólar í landinu í desember í fyrra og fjölgaði um þrjá frá desember 2006. Þar af fjölgaði einkareknum leikskólum um fimm en leikskólum reknum af sveitarfélögum fækkaði um tvo. Alls sóttu 2.316 börn nám í 36 einkareknum leikskólum í desember 2007 og hefur þeim fjölgað um 485 börn frá árinu áður, eða um rúmlega fjórðung. Í desember 2007 sóttu 13,3 prósent leikskólabarna einkarekna leikskóla en árið 1998 var hlutfallið 5,3 prósent.Börnum sem hafa annað móðurmál en íslensku fjölgar áfram og eru nú 1.571 talsins, eða níu prósent allra leikskólabarna. Algengasta erlenda móðurmál leikskólabarna er pólska og í öðru sæti er enska. Flestir erlendir ríkisborgar eru frá Austur-Evrópu eða tæp 60 prósent erlendra leikskólabarna. Börn með asískt ríkisfang eru tæp 11 prósent erlendra leikskólabarna.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira