Stúlka bjargast í reiðhjólaslysi vegna notkunar hjálms Nanna Hlín Halldórsdóttir skrifar 12. júní 2008 11:56 Emma Ljósbrá marðist nokkuð í andliti
Emma Ljósbrá Friðriksdóttir lenti í reiðhjólaslysi í apríl síðastliðnum sem hefði getað valdið henni alvarlegum höfuðáverkum hefði hún ekki verið með hjálm. Atvikið átti varð með þeim hætti að Emma fór fram af kanti án þess að átta sig á því og datt fram fyrir sig á andlitið. Ekki nóg með það heldur tókst hjólið á loft og lenti aftan á hnakkanum á henni. Emma rotaðist, marðist í andliti og brotnaði upp úr tönnum hennar en aðra áverka hlaut hún ekki og er við góða heilsu í dag. Friðrik Höskuldsson, faðir Emmu, sagði í samtali við Vísi að ,,hún væri ekki hérna stelpan mín ef hún hefði ekki verið með hjálm". Hann segir Emmu alltaf hjóla með hjálm en hjálminn fékk hún að gjöf frá Kiwanis sem hefur undanfarin ár gefið öllum 7 ára börnum á landinu hjálma. Herdís L. Storgaard hjá Sjóvá Almennum segir fremur óvanalegt að hjól takist svona á loft og lendi á fólki en það gerist þó og sérstaklega þegar eitthvað flækist í framhjóli eða þegar hjólað er ofan í dæld. Hins vegar gerist það nær undantekningarlaust að fólk lendi á andlitinu og höfðinu og því sé notkun hjálms mjög mikilvæg. Mikið er um að fólk hjóli um þessar mundir bæði vegna veðurblíðunnar og hækkandi verðs eldsneytis þannig að gott er að vera meðvitaður um þessi efni og nota hjálminn.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira