Erlent

Eisti grunaður um njósnir í heimalandinu

MYND/Getty Images

Sextíu og eins árs gamall Eisti og eiginkona hans hafa verið handtekin vegna gruns um njósnir í heimalandi sínu.

Frá þessu greindi talskona varnarmálaráðuneytis Eistlands þar sem maðurinn gengdi áður mikilvægu starfi. Maðurinn, Herman Simm, er sagður hafa unnið við að byggja upp öryggiskerfi sem átti að varðveita leynilegar upplýsingar og gera Eistland reiðubúið fyrir inngöngu i NATO. Landið fékk inngöngu þar árið 2004.

Varnarmálaráðuneytið vill ekki gefa upp fyrir hvern maðurinn er talinn hafa njósnað en fréttastofan BSN segir að það séu Rússar. Simm var handtekinn í gær og rannsaka eistnesk yfirvöld nú hversu yfirgripsmiklar njósnirnar séu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×