Hvetur Bandaríkjaþing til að samþykkja aðgerðir 22. september 2008 12:15
Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hvetur þingmenn í Washington til að flýta sér að samþykkja 700 milljarða dollara inngrip á fjármálamörkuðum. Samþykktin gæti þó tafist því ekki eru allir þingmenn reiðubúnir að samþykkja tillögurnar óbreyttar. Samkvæmt tillögum Paulsons myndi bandaríska fjármálaráðuneytið fá leyfi þingsins til að nota 700 milljarða dollara til þess að kaupa áhættulán fjármálafyrirtækja, einkum fasteignalán. Þannig vill hann koma í veg fyrir yfirvofandi gjaldþrotahrinu sem gæti ógnað fjármálalegum stöðugleika í landinu. Nú þegar hafa báðir forsetaframbjóðendurnir í Bandaríkjunum og ýmsir þingmenn varað við afleiðingum þess að veita ráðuneytinu, undir stjórn Paulsons, jafn víðtækar heimildir og hann krefst. Þannig sagði John McCain að ekki kæmi til greina að forstjórar fyrirtækjanna sem á að bjarga með peningum skattgreiðenda þæðu ofurlaun á meðan. Hann vill takmarka laun þeirra við hæstu laun hjá hinu opinbera. Demókratar á þingi tóku undir þetta í gærkvöldi og sögðust vilja að þingið hefði eftirlitshlutverk. Ekki gengi að skrifa ávísun upp á sjö hundruð milljarða dollara og vona bara hið besta. Frá Bush-stjórninni heyrist hins vegar að aðalatriðið sé að þingið gangi hratt til verks því dragist málið á langinn sé framundan uppnám á fjármálamörkuðum.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira