Loksins nýr sólblettur -fækkun sögð merki um ísöld Óli Tynes skrifar 29. september 2008 14:00 Sólbletturinn birtist 23. september.
Nýr sólblettur sást upp undir norðurhveli sólarinnar hinn 23 þessa mánaðar. Sólblettir hafa verið óvenjufáir á þessu ári og í margar vikur fyrir 23 september hafði enginn sést. Sólblettirnir eru sýnilegir vegna þess að þeir eru kaldari en umhverfið. Hitinn í þeim er 4000-4500 gráður á selsíus en umhverfis þá er hitinn um 5800 stig. Og þótt þeir sýnist eins og smá dílar geta þeir verið risastórir. Þeir geta þakið miklu stærra svæði en ummál jarðar. Gríðarleg gosvirkni og geislun fylgir sólblettum. Sumir rússneskir vísindamenn telja að loftslagsbreytingar á jörðinni stafi miklu fremur af virkni sólbletta en af útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Og þessir vísindamenn segja að það stefni í litla ísöld sem muni vara 45-65 ár. Talsmaður rússnesku vísindamannanna er Khabibullo Abdusamatov, sem er yfirmaður Pulkovo geimrannsóknarstöðvarinnar í Sankti Pétursborg. Niðurstöður sínar byggja rússarnir á fækkun sólbletta. Sólblettir eru dökkir að sjá vegna þess að þeir eru kaldari en umhverfið. Þeir geta orðið stærri um sig en jörðin og hafa mikil áhrif á virkni sólarinnar. Því fleiri sem þeir eru þeim mun meiri er útgeislun hennar. Rússarnir sækja samlíkingu til hinnar svokölluðu litlu ísaldar sem stóð frá 1645 til 1715. Þá urðu gríðarlegir kuldar í Evrópu og Bandaríkjunum. Abdusamatov segir að sannað sé að þá hafi sólblettavirknin aðeins verið einn þúsundasti af norminu. Þetta er að gerast aftur, segir hann. Abdusamatov segir að árið 2041 verði sólblettir í lágmarki. Snörp kæling jarðarinnar hefjist því í síðasta lagi í kringum 2060. Næstu 65 árin verði ísöld. Með skelfilegum afleiðingum fyrir mannkynið. Rússarnir eru síður en svo einir um þá skoðun að sólblettir hafi áhrif á veðurfar á jörðinni. Bradley E. Schaefer, prófessor við Yale háskóla skrifaði árið 1997 grein í tímaritið Sky & Telescope. Þar veltir hann fyrir sér örlögum byggðar norrænna manna á Grænlandi. Hún lagðist af af óútskýrðum ástæðum. Um það leyti voru sólblettir í lágmarki. Grein sína kallaði Schaefer Sunspots that Changed The World.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira