Mikilvægt að bankakerfinu sé rétt hjálparhönd Breki Logason skrifar 19. júní 2008 20:58 Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins.
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir nýjasta úspil ríkisstjórnarinnar sýna að Davíð hafi sigrað Golíat. Hann segir bankana hafa séð að þeir ráði ekki við stöðuna og fagnar þessu skrefi ríkisstjórnarinnar. „Verkalýðshreyfningin og stjórnarandstaðan hafa ekki tekið þetta í mál og Sjálfstæðisflokkurinn gefur sig núna þannig að ég fagna þessu skrefi sem þó er ekki stórt en jákvætt," segir Guðni sem hefði viljað sjá hámarkslán hækka meira en úr 18 í 20 milljónir. Hann segir mikilvægt að bankakerfinu sé rétt hjálparhönd við þessar aðstæður og í megindráttum sé þetta jákvæð niðurstaða sem styrki Íbúðarlánasjóð til framtíðar. „Við framsóknarmenn teljum mikilvægt að Íbúðalánasjóður sé enn á þessum markaði og höfum margsagt. Það var mikið fagnaðarefni að hann var ekki seldur til bankanna enda stóðum við gegn því." Guðni saknar þess þó að enn sé skortur á lánsfé í landinu og ekki bóli á neinni úrlausn ríkissjórnarinnar eða Seðlabankans hvað það varðar. „Við blasa alvarlegir hlutir hjá atvinnufyrirtækjum og skuldugum heimilum ef vextir sem þessir eiga að vera áfram. Ég skil ekki hvað dregur ríkisstjórnina í að klára þau mál sem hún hefur þóst vera að ráðast í," segir Guðni að lokum.
Tengdar fréttir Ríkisstjórnin lánar bönkum - brunabótaviðmið afnumið Ríksisstjórnin hefur ákveðið að grípa til sérstakra aðgerða vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármaálmarkaði. 19. júní 2008 16:45 Steingrímur: Innrás bankanna var mislukkuð Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármálamarkaði sýna að innrás bankanna á fasteignamarkað var mislukkuð. 19. júní 2008 17:15 ASÍ: Ástæða til að fagna aðgerðum ríkisstjórnarinnar Alþýðusamband Íslands telur ástæðu til að fagna tillögu ríkisstjórnarinnar sem miða að því að blása lífi í húsnæðismarkaðinn. Eins og fram kom fyrr í dag hleypur ríkið undir bagga með bönkunum og lánar þeim fé til að lána til íbúðarkaupa og þá verður brunabótaviðmið lánveitinga Íbúðalánasjóðs afnumið og miðað við 80 prósent af kaupverði eignar. 19. júní 2008 17:21 Afnám brunabótamatsins stórsigur fyrir lántakendur Ingibjörg Þórðardóttir, formaður félags fasteignasala, segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar skref í rétta átt og breytinguna á brunabótamatinu segir hún stórsigur fyrir lántakendur. Ingibjörg hefði þó viljað sjá hámarkslánin fara örlítið hærra. 19. júní 2008 16:56 Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Fleiri fréttir Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Sjá meira
Ríkisstjórnin lánar bönkum - brunabótaviðmið afnumið Ríksisstjórnin hefur ákveðið að grípa til sérstakra aðgerða vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármaálmarkaði. 19. júní 2008 16:45
Steingrímur: Innrás bankanna var mislukkuð Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármálamarkaði sýna að innrás bankanna á fasteignamarkað var mislukkuð. 19. júní 2008 17:15
ASÍ: Ástæða til að fagna aðgerðum ríkisstjórnarinnar Alþýðusamband Íslands telur ástæðu til að fagna tillögu ríkisstjórnarinnar sem miða að því að blása lífi í húsnæðismarkaðinn. Eins og fram kom fyrr í dag hleypur ríkið undir bagga með bönkunum og lánar þeim fé til að lána til íbúðarkaupa og þá verður brunabótaviðmið lánveitinga Íbúðalánasjóðs afnumið og miðað við 80 prósent af kaupverði eignar. 19. júní 2008 17:21
Afnám brunabótamatsins stórsigur fyrir lántakendur Ingibjörg Þórðardóttir, formaður félags fasteignasala, segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar skref í rétta átt og breytinguna á brunabótamatinu segir hún stórsigur fyrir lántakendur. Ingibjörg hefði þó viljað sjá hámarkslánin fara örlítið hærra. 19. júní 2008 16:56