Enski boltinn

Laudrup til Moskvu en ekki London

Elvar Geir Magnússon skrifar
Michael Laudrup.
Michael Laudrup.

Daninn Michael Laudrup mun ekki taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá West Ham. Það varð ljóst í dag þegar hann samþykkti að taka við þjálfun Spartak Moskvu.

Talið er að Laudrup hafi verið meðal manna á óskalista West Ham sem leitar að nýjum stjóra eftir brotthvarf Alan Curbishley.

Spartak hefur verið í þjálfaraleit síðan Stanislav Cherchesov var rekinn snemma í ágúst. Michael Laudrup er 44 ára og skrifar undir samning til eins og hálfs árs til að byrja með.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×