Sjö tonn af kókaíni í hálfkafbáti Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. september 2008 12:51 Hálfkafbáturinn, eða „self-propelled semi-submersible" eins og hann heitir á frummálinu. MYND/US Coast Guard
Sjö tonn af kókaíni með ætlað götuverðmæti sem svarar um 765 milljónum króna voru gerð upptæk af bandarísku strandgæslunni um helgina í því sem einn þátttakendanna kallaði „hættulegustu aðgerðina á ferli mínum". Fjórir menn voru handteknir við sama tækifæri um borð í ríkisfangslausu skipi um 500 kílómetra vestur af Guatemala. Skipið er af gerðinni „self-propelled semi-submersible" sem mætti ef til vill þýða sem sjálfknúinn hálfkafbát. Þetta er farartæki sem marar í hálfu kafi við siglingu og er að mestu undir yfirborði sjávar en getur þó ekki farið algjörlega í kaf. Fyrir vikið er það torséð á radar og því ákjósanlegt fley fyrir starfsemi sem illa þolir dagsljósið. Reyndu ýmis brögð Áhöfnin skellti vélunum í bakkgír þegar hún varð þess vör að sveit strandgæslunnar var komin um borð í skipið. Með því var ætlunin að fella hópinn í sjóinn. Þetta tókst þó ekki svo næst reyndu fjórmenningarnir að sökkva skipinu með því að opna botnlokur og fylla það af sjó. Strandgæslusveitinni tókst þó að brjóta sér leið inn í skipið og stöðva þessa framkvæmd. Skipið reyndist búið siglinga- og fjarskiptatækjum af fullkomnustu gerð og getur ferðast mjög langar vegalengdir áningarlaust að sögn strandgæslunnar sem hefur þungar áhyggjur af aukinni notkun slíkra hálfkafbáta við smyglstarfsemi. Þetta útspil segir strandgæslan vera svar við þeirri tækni hennar að gera út þyrlur með skyttum sem skjóti á vélar hefðbundinna hraðbáta. Vélar hálfkafbátsins eru undir sjávarmáli og því ekki auðkomið á þær skoti. Fley af þessari gerð kostar allt að eina milljón dollara, jafnvirði 90 milljóna króna, og er hægt að taka sundur í mjög smáar einingar og þannig smygla því svo lítið beri á milli landa innan um annan varning. Síðasta ár var metár í kókaínhaldlagningum hjá bandarísku strandgæslunni sem þá lagði hald á 158 tonn af efninu sem er aukning um tvö prósent frá árinu á undan. CNN greindi frá.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira