Óásættanlegt að gangandi tímasprengjur leiki lausum hala 30. september 2008 19:30
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir ófyrirgefanlegt að ekki séu til ákvæði í lögum sem geri mögulegt að fylgst sé með kynferðisbrotamönnum eftir afplánun dóms. Ekki sé ásættanlegt að gangandi tímasprengjur leiki lausum hala án þess að brugðist sé við á einhvern hátt. Talið er að ein af hverjum fimm stúlkum og einn af hverjum tíu drengjum verði fyrir kynferðisofbeldi fyrir 18 aldur. Á rúmlega 20 árum hafa 153 dómar verið felldir yfir mönnum sem framið hafa kynferðisbrot gegn börnum, en mörg mál koma aldrei fram í dagsljósið. Eftir afplánun fara brotamenn aftur út í samfélagið, fæstir vita um afdrif þeirra, en fullyrða má að fáir vilji hafa þá í nágrenni við sig - hvað þá börn sín. Bragi segir fæsta kynferðisbrotamenn líklega til að endurtaka brot sín, þó sé lítill hluti haldinn því sem kallað er barnagirnd. Engin úrræði séu fyrir hendi til að bregðast við þeirri ógn sem börnum stendur af þeim, en ekki þyrfti að gera miklar breytingar á lagaákvæðum sem myndi gera það kleift að unnt væri að hafa vöktun og eftirlit með þessum mönnum ásamt því að veita þeim stuðning og viðeigandi aðstoð sem væri til þess fallinn að draga úr líkum þess að þeir endurtækju brot sín. Forstjórinn segir umræðuna hafa staðið yfir ansi lengi og í raun ófyrirgefanlegt að ekkert hafi hreyfst í málinu. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ber ábyrgð á málaflokknum, en starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins vinnur nú að heildarendurskoðun hegningarlaganna og áætlað er að hann skili tillögum í næsta mánuði. Forvitnilegt verður að sjá hvort þar verður nýtt ákvæði er lýtur að kynferðisbrotamönnum. Nánar verður fjallað um málefni kynferðisafbrotamanna í fréttum Stöðvar 2 annað kvöld.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira