ÞSSÍ aðstoðar við uppbyggingu jarðvarmavirkjana í Níkaragva 24. september 2008 16:35
Neyðarástand ríkir í orkumálum í Níkaragva en möguleikar landsins til nýtingar jarðvarma eru mjög miklir, að sögn Geirs Oddssonar umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar í landinu. Hann segir umframeftirspurn gífurlega og að skömmtun rafmagns sé daglegt brauð. Fyrr í mánuðinum fór rúmlega 25 manna hópur úr orku- og námumálaráðuneyti og umhverfis og auðlindaráðuneyti Níkaragva til El Salvador í boði Þróunarsamvinnustofnunar Íslands til að taka þátt í námskeiði um umhverfisáhrif jarðvarmavirkjana. Námskeiðið var skipulagt og haldið af LaGeo, þarlendu fyrirtæki sem er það eina á sviði jarðhita í El Salvador. Námskeiðið er hluti af fimm ára verkefni ráðuneytanna og ÞSSÍ sem miðar að uppbyggingu þekkingar og aukinni nýtingu jarðvarma í Níkaragva. Athygli vakti að allir fyrirlesarar LaGeo á námskeiðinu hafa lokið námi í Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Gioconda Guevara, verkefnisstjóri ÞSSÍ í jarðhitamálum í Níkaragva, segir mikilvægt að nýta sér þekkingu nágrannalanda sinna. Í El Salvador, sem býr við svipaðar aðstæður og Níkaragva, hefur nýting jarðhita verið til fyrirmyndar með ríka áherslu á verndun umhverfis og náttúru. LaGeo rekur nú tvær jarðvarmavirkjanir í El Salvador sem framleiða 24% af orkuþörf landsins en hlutfall jarðhita í orkuframleiðslu Níkaragva nær aðeins tæplega 8% þrátt fyrir miklar jarðhitaauðlindir. Samhliða orkuverunum stendur LaGeo einnig fyrir ýmsum félagslegum verkefnum þar sem unnið er með íbúum virkjanasvæðanna. Geir Oddsson segir að mikill meirihluti orkuframleiðslu landsins komi frá díselstöðvum með tilheyrandi mengandi útblæstri, háum rekstrarkostnaði og óöryggi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira