Óttast að tala látinna eigi eftir að hækka verulega 29. október 2008 15:52 Fórnarlömb skjálftans bíða eftir aðstoð. MYND/AP
Hátt á annað hundrað manns fórust þegar þrír öflugir jarðskjálftar riðu yfir suðvestur Pakistan í dag og þúsundir manna hafa misst heimili sín. Rauði krossinn óttast að þessar tölur eigi eftir að hækka verulega. „Jarðskjálftarnir mældust á bilinu 6,2-6,4 á Richter og ollu mestri eyðileggingu í Balukistanhéraði sem liggur við landamæri Afganistans," segir í tilkynningu frá Rauða krossinum. Íslenskur liðsmaður samtakanna er í Peshawar í Pakistan. „Viðbragðssteymi frá Alþjóða Rauða krossinum og Rauða hálfmánanum í Pakistan voru send á vettvang þegar í morgun til að hefja neyðaraðgerðir og meta ástandið," segir einnig. „Að sögn hjálparstarfsmanna hefur fjöldi eftirskjálfta fylgt í kjölfar stóru skjálftanna þriggja og eru íbúar mjög óttaslegnir. Flestir hafast við undir berum himni en nú er orðið mjög kalt á næturnar á þessum slóðum og vetur við það að ganga í garð. Rauði hálfmáninn hefur þegar hafið dreifingu hjálpargagna á svæðinu og heilbrigðisteymi þeirra veitir særðum og sjúkum aðhlynningu og fyrstu hjálp." Sérhæft skurðlæknateymi Alþjóða Rauða krossins sem hefur aðsetur í borginni Peshawar í norðvesturhluta Pakistan hefur einnig verið sent á staðinn. Áslaug Arnoldsdóttir hjúkrunarfræðingur og einn reyndasti sendifulltrúa Rauða kross Íslands hefur nú um tveggja mánaða skeið unnið í Peshawar fyrir Alþjóða Rauða krossinn við að veita aðstoð flóttamönnum frá átakasvæðum við landamærahéruð Afganistans. „Starfsmennirnir í þessu teymi eru allir mjög reyndir hjálparstarfsmenn fyrir Rauða krossinn og munu geta veitt særðum aðstoð á vettvangi og jafnvel framkvæma flóknar skurðaðgerðir á staðnum," segir Áslaug. Fram kemur einnig að Áslaug hafi ekki fundið fyrir jarðskjálftunum í morgun og í dag. Hún mun halda áfram störfum sínum í Peshawar og nágrenni út nóvember.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira