Erlent

Fellibylur gengur á land í Kína

Frá Hong Kong þar sem áhrifa fellibyljarins gætti.
Frá Hong Kong þar sem áhrifa fellibyljarins gætti. MYND/AP

Átta eru látnir og að minnsta kosti 15 er saknað á Fillipseyjum eftir að fellibylurinn Hagupit gekk þar yfir á síðasta sólarhring. Þá skemmdust yfir 800 hús á eyjunum í illviðrinu.

Bylurinn gekk á land í suðurhluta Kína í morgun og höfðu yfir 200 þúsund sjómenn verið kallaðir í land og yfir 28 þúsund manns yfirgefið heimili sín í Guandong-héraði vegna þess. Bylurinn fór nærri Hong Kong og var fólki þar ráðlagt að halda sig innan dyra á meðan versta veðrið gekk yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×