Mannréttindadómstóll Evrópu vísar máli grásleppusjómanns frá 19. desember 2008 15:44 Björn Bjarnason kynnti niðurstöðu dómsins fyrir ríkisstjórninni í morgun.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá kærumáli Björns Guðna Guðjónssonar gegn íslenska ríkinu um bann við grásleppuveiðum í netlögum. Í frétt á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins segir að dómstóllinn hafi lýst kæruna ótæka þar sem hún þótti ,,augljóslega illa grunduð". Björn Guðni var sakfelldur í Hæstarétti Íslands fyrir fiskveiðibrot, með því að hafa veitt grásleppu á óskráðum báti sínum í fiskveiðilandhelgi Íslands, án almenns leyfis til veiða í atvinnuskyni og leyfis til grásleppuveiða. Bar hann fyrir sig að hafa róið í netlögum tiltekinnar jarðar, en til þess hafi hann haft leyfi landeigenda. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að löggjafanum væri heimilt að vernda nytjastofna í fiskveiðilandhelginni og stuðla að hagkvæmri nýtingu þeirra, með því að banna landeigendum veiðar úr þeim innan netlaga sem utan nema með sérstöku leyfi. Var Birni Guðna gert að greiða 400.000 króna sekt í ríkissjóð og sæta upptöku á jafnvirði þeirra grásleppuhrogna sem hann hafði selt. Björn Guðni kærði málið til Mannréttindadómstóls Evrópu á þeim grundvelli að með dómi Hæstaréttar hefði verið brotið gegn friðhelgi eignarréttar hans til slíkra veiða, sem er varinn með 1. gr. 1. viðauka við Mannréttindasáttmála Evrópu. Íslenska ríkið hafnaði kröfum kæranda og krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómi. „Ákvörðun Mannréttindadómstólsins er rökstudd og eru ekki gerðar athugasemdir við íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið," segir í frétt ráðuneytisins. „Fallist er á röksemdir stjórnvalda um að skýr lagaheimild hafi verið fyrir hendi að refsa kæranda fyrir veiðar án veiðileyfis og einnig að fiskveiðistjórnarkerfið feli ekki í sér takmarkanir sem brjóti gegn mannréttindum. Því sé komið á í þágu almannahagsmuna til að vernda fiskistofna og gangi ekki of langt til að ná því markmiði. Auk þess er hafnað að ákvörðun Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá því 24. október 2007, í máli Erlings Sveins Haraldssonar og Arnars Snævars Sveinssonar gegn íslenska ríkinu, sem varðaði lög um stjórn fiskveiða, hafi nokkur áhrif á þetta mál, en kærandi sendi álit hennar sem innlegg til að styðja kröfur sínar í þessu máli."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira