SUS: Ríkisstjórnin vannýtti uppsveiflu síðustu ára 19. desember 2008 15:09 Þórlindur Kjartansson er formaður SUS.
Samband ungra sjálfstæðimanna harmar þá stöðu sem nú er komin upp í fjármálum íslenska ríkisins og sveitarfélaga. Sambandið segir ljóst að ríkisstjórnin hafi vannýtt uppsveiflu síðustu ára með því að þenja út ríkisresksturinn í samkeppni við ofþanið hagkerfi á einkamarkaði. „Þegar vel árar og þensla ríkir í efnahagsmálum er mikilvægt að ríki dragi saman seglin og ráðist ekki í stórauknar framkvæmdir. Enn síður ætti að fjölga í röðum opinberra starfsmanna við slíkar aðstæður," segir í ályktun SUS. SUS bendir á að fjöldi ríkisstarfsmanna hafi vaxið gríðarlega á undanförnum árum. „Þessi ábyrgðarlausa útþensla ríkisins hefur gert það að verkum að nú þarf ríkið að segja upp fólki og senda það út á vonlítinn atvinnumarkað. Mun betra hefði verið ef þeim aga hefði verið gætt í uppsveiflu að skera niður þau verkefni sem ekki var brýn þörf á, enda hefðu þeir sem misstu vinnuna við slíkar aðstæður líklega getað snúið sér að öðrum tækifærum. Undirstrikar þessi staða að enn mikilvægara er að hið opinbera sýni aðhald og ráðdeildarsemi í uppsveiflu heldur en í niðursveiflu." „SUS gagnrýnir ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka tekjuskatt einstaklinga auk þess að veita heimild fyrir enn frekari hækkun á útsvari sveitafélaga. Boginn hefur verið spenntur upp á þenslutímum og leitt til þess að aðstæður eru nú þannig að ríkissjóður bregst við með skattahækkunum. Þetta eru kolröng viðbrögð enda er ljóst að heimilin í landinu berjast mörg í bökkum nú þegar afborganir stórhækka, verðlag hækkar og margir horfa fram á skertar atvinnutekjur eða jafnvel atvinnumissi,"segir ennfremur. Þá segir að margvíslegar aðrar hækkanir á gjaldtöku séu einnig ámælisverðar. „Hækkun skatta vinnur þvert gegn því markmiði að koma hjólum atvinnulífsins aftur í gang og ganga þvert gegn hagsmunum heimilanna í landinu." SUS átelur vinnubrögð við gerð og umræðu fjárlaga ársins 2009. „Það er stærsta verkefni Alþingis að samþykkja fjárlög ár hvert og mikilvægt að sú vinna sé vel unnin og að sem flestir geti fengið að tjá sig um innihald þeirra. SUS áréttar að fjárlagafrumvarpið eins og það liggur fyrir Alþingi sé meingallað. Eftir hrun tekjustofna ríkisins er ljóst að ekki er hægt að viðhalda áþekkum útgjöldum og síðastliðin ár." Því þurfi að minnka útgjöld ríkisins svo um munar að mati SUS og ganga sparnaðaraðgerðir ríkisstjórnarinnar ganga „því miður of skammt í þeim efnum."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira