Hægir á þorsksölu og aukið birgðahald 22. desember 2008 05:00 Verð hefur lækkað á ýmsum fisktegundum síðustu vikur, sérstaklega þorski. Samdráttur á erlendum mörkuðum gæti numið á annan tug milljarða króna í útflutningstekjum á ársgrundvelli ef ekki rætist úr. Birgðir safnast upp hjá framleiðendum.
Stóru sjávarútvegsfyrirtækin í landinu finna fyrir breytingum á erlendum mörkuðum, sérstaklega í eftirspurn eftir þorski. Verð hefur lækkað í erlendri mynt, jafnvel um allt að þriðjung þótt misjafnt sé eftir mörkuðum og afurðum. Gróflega áætlað gæti samdráttur á erlendum mörkuðum numið á annan tug milljarða króna í útflutningstekjum á ársgrundvelli. Ef miðað er við 150 milljarða útflutningsverðmæti á ári og samdrátt upp á 20 prósent þýðir það tekjutap upp á 15 milljarða króna. Þá er ekki tekinn með í reikninginn aukinn kostnaður við til dæmis birgðahald. Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal, segir að erfiðara sé að selja fisk og að verðið sé lægra. „Við finnum fyrir þessu. Þetta er búið að vera þungt undanfarnar vikur,“ segir hann og telur að viðskiptavinirnir haldi fastar um budduna. „Við eigum í sömu erfiðleikum og aðrir en enn þá er engin birgðasöfnun hjá okkur,“ segir Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri hjá Þorbirni í Grindavík. „Verð hefur lækkað í erlendri mynt á flestum mörkuðum. Verðhækkun hefur jafnast út. Þorskverð er nú það sama og haustið 2007,“ segir hann og býst við að verðið lækki áfram. Gunnar gerir ráð fyrir að kaupendur hafi gengið á birgðirnar upp á síðkastið og segir að þeir kaupi eingöngu inn til nánustu framtíðar og láti sig frekar vanta fisk en að liggja með birgðir. Birgðir lendi á framleiðendum. „Við erum ekki farnir að liggja með birgðir enn þá en upp úr páskum megum við klárlega búast við því,“ segir hann. Eggerti Guðmundssyni, forstjóra Granda, sýnist eftirspurn og sala ekki hafa minnkað að ráði. Kaupendur haldi að sér höndum í birgðum og taki enga áhættu. „Allir eru á bremsunni og reyna að halda sem minnstar birgðir. Menn eru varkárir og taka ekki afgerandi afstöðu fyrir nýtt ár.“ Eggert segir að birgðir hljóti að safnast upp og kannast við að birgðir hafi heldur verið að aukast hjá Granda. Hann vonast til að úr rætist þegar líður á næsta ár. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, kannast við að hægst hafi um á erlendum mörkuðum en vill ekki segja hversu mikið. Hann gefur ekkert út á aukið birgðahald og segir að ekki verði brugðist við þróuninni með öðrum hætti en að sölumennirnir verði að selja meira. Þorsteinn Már Baldvinsson
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Sjá meira