Innlent

Evrópsk reglugerð um skotvopnaleyfi tekin í gildi

Í dag tók gildi reglugerð um evrópska skotvopnaleyfið. Með gildistöku reglugerðarinnar geta handhafar skotvopnaleyfa sótt um evrópskt skotvopnaleyfi er gerir handhöfum þess kleift að fara með skotvopn sín til veiða eða stunda íþróttaskotfimi á Schengensvæðinu auk Bretlands og Írlands án þess að þurfa að sækja um sérstakt leyfi til tímabundins útflutnings vopnsins í hvert sinn.

Það er þó einugis heimilt að því gefnu að notkun vopnsins sé leyfð í viðkomandi landi, dvöl vari ekki lengur en þrjá mánuði og að handhafi leyfisins geti framvísað staðfestingu á því að tilgangur dvalarinnar sé skotveiði eða íþróttaskotfimi.

Lögreglustjórar eru útgefendur evrópska skotvopnaleyfisins og skulu umsóknir berast lögreglustjóra. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á lögregluvefnum, undir liðnum eyðublöð. Með umsókn til lögreglustjóra skulu einnig fylgja tvær nýlegar passamyndir og ljósrit af skotvopnaleyfi umsækjandans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×