Erlent

Kjarnorkueftirlitsmenn reknir á braut

Óli Tynes skrifar

Norður-Kóreumenn hafa rofið innsigli Alþjóða kjarnorkustofnunarinnar á helsta kjarnorkuveri sínu og skipað eftirlitsmönnum á braut.

Norðamenn segjast ætla að endurræsa kjarnaofninn og hafa sagt að þeir myndu flytja þangað geislavirk efni strax í næstu viku.

Kóreumenn féllust á að hætta við kjarnorkuáætlun sína á síðasta ári gegn mikilli orku- og efnahagsaðstoð frá Vesturlöndum. Þeir segja hinsvegar að Vesturlönd hafi ekki staðið við loforð sín.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×