Neyðaráætlun lögð fram síðdegis 30. apríl 2008 11:57
Fjörutíu geislafræðingar og tæplega hundrað hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum ætla að standa við uppsagnir sínar að öllu óbreyttu og hætta á miðnætti í kvöld. Neyðaráætlun Landspítalans verður ekki lögð fram fyrr en síðdegis þegar forsvarsmenn spítalans vita heildarfjölda uppsagna. Fundir hafa staðið síðustu daga um breytt vaktafyrirkomulag á Landspítalanum og deiluna um það. Heilbrigðisráðherra fundaði með forsvarsmönnum spítalans, landlækni og fleirum í gærkvöld. Engir samningar hafa náðst þrátt fyrir að spítalinn hafi frestað breytingum á vaktafyrirkomulaginu til 1.október. 96 skurð- og hjúkrunarfræðingar ætla að standa við uppsagnir sínar og hætta á miðnætti í kvöld. Bryndís Þorvaldsdóttir, talsmaður hjúkrunarfræðinga í Fossvogi, segir að þeir eigi ekki annarra kosta völ. Spítalinn sé einungis að slá vandanum á frest til 1. október. Það henti öllum betur að hætta nú þegar sumarfrí séu fram undan en í haust. Þá ælta fjörutíu geislafræðingar einnig að hætta á miðnætti. Á fimmta tug geislafræðinga starfar á Landspítalanum og verða því um 10 eftir þegar hinir hætta. Kristín Þórmundsdóttir, talsmaður geislafræðinga, segir að einungis lágmarksþjónusta verði þá í boði á myndgreiningarsviði. Slysadeildin hafi forgang með röntgenmyndir en engar sérrannsóknir á borð við segulómun og æðaþræðingar verði í boði. Skurð-og svæfingahjúkrunarfræðingar á Akureyri sendu frá sér yfirlýsingu rétt fyrir fréttir og lýsa yfir stuðningi við starfsfélaga sína á Landspítalanum og undrast vanþekkingu stjórnenda spítalans og yfirvalda á þeim sérhæfðu störfum sem þessar stéttir sinna. Forsvarsmenn spítalans vinna nú að neyðaráætlun sem kynnt verður síðdegis þegar þeir vita heildarfjölda uppsagna í lok dags.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira