Einhverjir hörðustu tímar í íslenskri flugsögu 16. september 2008 13:00
Aldrei hefur jafnmörgum flugmönnum hér á landi verið sagt upp í einu vetfangi líkt og átt hefur sér stað að undanförnu hjá Icelandair. Í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna kemur fram að félaginu teljist til að 112 flugmenn horfi fram á atvinnumissi til lengri eða skemmri tíma, en það er rúmlega þriðjungur af flugmönnum á starfsaldurslista félagsins. „Fyrstu uppsagnirnar tóku gildi strax í byrjun september og halda áfram fram eftir vetri. Segja má að alls séu 169 stöðugildi í uppsögn hjá félaginu þar sem 57 flugstjórar munu taka sæti flugmanns í vetur. Í lok júní sl. tilkynnti félagið um uppsagnir 88 flugmanna. Í ágúst var 24 flugmönnum til viðbótar sagt upp störfum.Þá segir í fréttabréfinu að íslenskir atvinnuflugmenn horfi fram á einhverja hörðustu tíma í íslenskri flugsögu. Samkvæmt upplýsingum frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna eru litlar horfur á að ástandið batni og að uppsagnir verði dregnar til baka. „Gangi verstu spár eftir eru jafnframt litlar líkur á að þeir flugmenn sem eiga sæti neðst á starfsaldurslista félagsins verði kallaðir til starfa á ný næsta sumar," segir í fréttabréfi FÍA.Í sama bréfi er þó bent á að verkefnastaða annarra íslenskra flugfélaga sé ekki jafnsveiflukennd og hjá Icelandair. Fréttir hafi borist af ráðningum hjá Air Atlanta að undanförnu en Flugfélag Íslands hafi sagt upp 15 flugmönnum nýverið. Sextíu flugmenn munu starfa hjá félaginu í vetur. Þá hefur Flugfélagið Ernir fækkað um fjóra flugmenn miðað við það sem mest var í sumar, þar af er einn fastráðinn.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Sjá meira