Undrast verðmætamat meirihlutans 26. apríl 2008 10:29 Laugavegshúsin voru keypt á 580 milljónir.
Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík undrast verðmætamat meirihlutans í borginni. Hann bendir á að eitt glæsilegasta hús landsins, Fríkirkjuvegur 11, hafi verið selt fyrir litlu hærri upphæð en kostaði að greiða fyrir húsin á Laugavegi 4-6. Hann segir blasa við að meirihlutinn hafi notað almannafé til þess að „kaupa ónýt hús fyrir 580 milljónir og fjármagna þau kaup með sölu á einu glæsilegasta og virðulegasta húsi borgarinnar." Óskar lagði fram bókun í borgarráði Reykjavíkur í gær þegar ákveðið var að taka kauptilboði Novators, sem falaðist eftir Fríkirkjuveginum sem upphaflega var í eigu Thors Jensen, langafa Björgólfs Thors Björgólfssonar. Í bókuninni segir meðal annars: „Salan á einu glæsilegasta húsi Reykjavíkur vekur upp spurningar um fasteigna- og fjárfestingarstefnu meirihluta F-lista og Sjálfstæðisflokks. Fyrir tæpum þremur mánuðum keyptu þessir flokkar húsin við Laugaveg 4-6 og Skólavörðustíg 1A fyrir 580 milljónir króna. Núna eru þessir sömu flokkar að selja Fríkirkjuveg 11 fyrir 600 milljónir og hestagerðið, sunnan hússins, fyrir 50 milljónir, samtals 650 milljónir." Fríkirkjuvegur 11 var seldur á 600 milljónir auk þess sem greiddar verða 50 milljónir fyrir hestagerði sunnan hússins. Í bókuninni segir einnig að færa megi fyrir því rök að kaupin á Laugavegi 4-6 séu fjármögnuð með sölunni á Fríkirkjuvegi 11. „Þegar þessi fasteignaviðskipti eru skoðuð í samhengi þá blasir við að Sjálfstæðisflokkurinn og F-listinn hafa notað almannafé til þess að kaupa ónýt hús fyrir 580 milljónir og fjármagna þau kaup með sölu á einu glæsilegasta og virðulegasta húsi borgarinnar. Þessi samanburður er ömurlegur en því miður staðreynd," segir að lokum í bókuninni.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Fleiri fréttir Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Sjá meira