Segist ekki hafa logið að ríkissaksóknara 6. maí 2008 18:46 Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Mynd/ Vilhelm.
Vísi hefur borist yfirlýsing frá embættum ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara vegna fréttar sem birtist á vefnum fyrr í dag. Þar var vitnað í Kompás þátt kvöldsins undir fyrirsögninni Ríkislögreglustjóri laug að ríkissaksóknara. Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri og Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari hafna alfarið umræddum ásökunum. Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan: Reykjavík 6. maí 2008. Yfirlýsing frá embættum ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara Ríkislögreglustjóri og ríkissaksóknari hafna ásökunum visis.is og fréttaskýringaþáttarins Kompáss á Stöð 2. Á vefmiðlinum visir.is í dag, þriðjudaginn 6. maí, segir í fyrirsögn: „Kompás í kvöld: Ríkislögreglustjóri laug að ríkissaksóknara." Með fréttinni er birt mynd og nafn ríkislögreglustjóra. Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri og Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari hafna alfarið umræddum ásökunum. Embætti ríkislögreglustjóra óskaði með símbréfi til Þjóðskjalasafnsins dagsettu 11. maí 2007, eftir afriti af gögnum um andlát tveggja manna sem létust árið 1985. Í svari Þjóðskjalasafns, dagsettu 25. maí 2007, var upplýst að gögn málsins hefðu ekki fundist við fyrstu athugun. Leitaði ríkislögreglustjóri þá til Landspítala Háskólasjúkrahúss, þann 4. júní 2007, eftir sömu gögnum. Í svari Landspítalans frá 6. júní 2007 fylgdi afrit af krufningarskýrslum og gögnum Rannsóknarlögreglu ríkisins. Hinn 1. ágúst sama ár var ættingjum annars hinna látnu kynnt þessi gögn en þeim synjað um afrit af þeim með vísan til reglna ríkissaksóknara um aðgang að gögnum opinberra mála sem lokið er. Í bréfi ríkissaksóknara dagsettu 15. ágúst 2007 er óskað eftir að embætti hans yrðu afhent gögn málsins. Það var gert bréfi dagsettu 22. ágúst. Í bréfinu er tekið fram að gagnanna hafi verið aflað hjá Landspítalanum þar sem þau fundust ekki á Þjóðskjalasafninu. Þannig lágu gögn málsins fyrir hjá ríkissaksóknara þegar hann tók ákvörðun um að hafna aðgangi að umræddum gögnum.
Tengdar fréttir Kompás í kvöld: Ríkislögreglustjóri laug að ríkissaksóknara Ekki verður betur séð en að Ríkislögreglustjóraembættið hafi farið með rangt mál í bréfi til Ríkissaksóknara á síðasta ári. Í Kompási í kvöld er greint frá baráttu ættingja tveggja manna um að fá aðgang að gögnum vegna rannsóknar á andláti mannanna tveggja. Ríkislögreglustjórinn hafnaði þeirri beiðni. 6. maí 2008 15:13 Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira
Kompás í kvöld: Ríkislögreglustjóri laug að ríkissaksóknara Ekki verður betur séð en að Ríkislögreglustjóraembættið hafi farið með rangt mál í bréfi til Ríkissaksóknara á síðasta ári. Í Kompási í kvöld er greint frá baráttu ættingja tveggja manna um að fá aðgang að gögnum vegna rannsóknar á andláti mannanna tveggja. Ríkislögreglustjórinn hafnaði þeirri beiðni. 6. maí 2008 15:13