Innlent

Segist ekki hafa logið að ríkissaksóknara

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Mynd/ Vilhelm.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Mynd/ Vilhelm.

Vísi hefur borist yfirlýsing frá embættum ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara vegna fréttar sem birtist á vefnum fyrr í dag. Þar var vitnað í Kompás þátt kvöldsins undir fyrirsögninni Ríkislögreglustjóri laug að ríkissaksóknara. Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri og Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari hafna alfarið umræddum ásökunum.

Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan:

Reykjavík 6. maí 2008.

Yfirlýsing frá embættum ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara

Ríkislögreglustjóri og ríkissaksóknari hafna ásökunum visis.is og

fréttaskýringaþáttarins Kompáss á Stöð 2.

Á vefmiðlinum visir.is í dag, þriðjudaginn 6. maí, segir í fyrirsögn:

„Kompás í kvöld: Ríkislögreglustjóri laug að ríkissaksóknara." Með

fréttinni er birt mynd og nafn ríkislögreglustjóra.

Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri og Valtýr Sigurðsson,

ríkissaksóknari hafna alfarið umræddum ásökunum.

Embætti ríkislögreglustjóra óskaði með símbréfi til

Þjóðskjalasafnsins dagsettu 11. maí 2007, eftir afriti af gögnum um

andlát tveggja manna sem létust árið 1985.

Í svari Þjóðskjalasafns, dagsettu 25. maí 2007, var upplýst að gögn

málsins hefðu ekki fundist við fyrstu athugun. Leitaði

ríkislögreglustjóri þá til Landspítala Háskólasjúkrahúss, þann 4.

júní 2007, eftir sömu gögnum. Í svari Landspítalans frá 6. júní

2007 fylgdi afrit af krufningarskýrslum og gögnum Rannsóknarlögreglu

ríkisins.

Hinn 1. ágúst sama ár var ættingjum annars hinna látnu kynnt þessi

gögn en þeim synjað um afrit af þeim með vísan til reglna

ríkissaksóknara um aðgang að gögnum opinberra mála sem lokið er.

Í bréfi ríkissaksóknara dagsettu 15. ágúst 2007 er óskað eftir að

embætti hans yrðu afhent gögn málsins. Það var gert bréfi dagsettu

22. ágúst. Í bréfinu er tekið fram að gagnanna hafi verið aflað hjá

Landspítalanum þar sem þau fundust ekki á Þjóðskjalasafninu. Þannig

lágu gögn málsins fyrir hjá ríkissaksóknara þegar hann tók ákvörðun

um að hafna aðgangi að umræddum gögnum.


Tengdar fréttir

Kompás í kvöld: Ríkislögreglustjóri laug að ríkissaksóknara

Ekki verður betur séð en að Ríkislögreglustjóraembættið hafi farið með rangt mál í bréfi til Ríkissaksóknara á síðasta ári. Í Kompási í kvöld er greint frá baráttu ættingja tveggja manna um að fá aðgang að gögnum vegna rannsóknar á andláti mannanna tveggja. Ríkislögreglustjórinn hafnaði þeirri beiðni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×