Björn Ingi og Vilhjálmur hefðu átt að greiða skatt af veiðiferðinni 22. ágúst 2008 12:36 Björn ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefðu átt að greiða skatt vegna veiðiferðarinnar sem þeir fóru ásamt Hauki Leóssyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni í ágúst í fyrra. Þetta er mat skattalögfræðings sem Vísir ræddi við. Haukur Leósson, Björn Ingi Hrafnsson, Guðlaugur Þ. Þórðarson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson veiddu í Miðfjarðará dagana 11. - 14 ágúst í fyrra, þann tima sem Baugur var með ána á leigu. Guðlaugur fullyrðir að hann hafi sjálfur greitt fyrir sína ferð en Haukur Leósson bauð Birni Inga og Vilhjálmi. Ólafur Kristjánsson, skattalögfræðingur hjá Logos, sagði í samtali við Vísi að strangt til tekið væru svona gjafir skattskyldar, sérstaklega þar sem upphæðin væri yfir því sem eðlilegt gæti talist þegar gjafir væru annars vegar. Það ylti hins vegar allt á heiðarleika þeirra sem ættu í hlut. Í sjöundu grein laga um tekjuskatt segir að skattskyldar séu beinar gjafir í peningum eða öðrum verðmætum, þar með talin afhending slíkra verðmæta í hendur nákominna ættingja, nema um fyrirframgreiðslu upp í arf sé að ræða. Undanskildar séu þó tækifærisgjafir, enda sé verðmæti þeirra ekki meira en almennt gerist um slíkar gjafir svo og verðlitlir vinningar í almennum happdrættum og keppnum. Vilhjálmur greiddi ekki skatt af veiðiferðinni. Björn Ingi sagði hins vegar í samtali við Vísi að hann vildi ekki tjá sig meira um þetta mál en hann hefði þegar gert. Hjá Ríkisskattstjóra fengust þær upplýsingar að ekki væri komin framkvæmd á þetta ákvæði sem um ræði. Ekki sé vitað til þess að gengið hafi úrskurður hjá yfirskattanefnd vegna málsins og ekki séu komnar neinar verklagsreglur um neinar fjárhæðir þessu tengdu. Ekki náðist í Gest Steinþórsson, skattstjóra í Reykjavík, við vinnslu þessarar fréttar.
Tengdar fréttir Stjórnmálamenn eiga ekki að þiggja gjafir og boð fyrirtækja Hanna Birna Kristjánsdóttir, nýkjörin borgarstjóri, segir að að stjórnmálmenn eigi ekki að þiggja gjafir og boð frá fyrirtækjum. 21. ágúst 2008 19:48 Stórlaxar veiddu í boði Baugs við upphaf REI máls Skömmu áður en vinna við fyrirhugaðan samruna Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysi Green Energy (GGE) hófst fóru helstu áhrifamenn Orkuveitu Reykjavíkur ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra í laxveiði í boði Baugs. 20. ágúst 2008 11:32 Haukur fékk bónuskjör á veiðileyfum frá Baugi Haukur Leósson greiddi Baugi 480 þúsund krónur úr eigin vasa fyrir veiðiferðina í Miðfjarðará sem Vísir hefur fjallað um síðan í gær. 21. ágúst 2008 18:27 Þriggja daga veiði í Miðfjarðará kostar hálfa milljón Miðfjarðará við Laugabakka er um 200 km frá Reykjavík en hún er 113 km löng með yfir tvö hundruð merktum veiðistöðum. Áin er af mörgum talin fallegust áa hér á landi en veiðisvæðið samanstendur af fjórum ám. Dagurinn í Miðfjarðará kostar um 150 þúsund krónur með gistingu í glæsilegu veiðihúsi og fæði. 20. ágúst 2008 12:56 Vissi ekki að Baugur var með Miðfjarðará á leigu Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segist ekki hafa haft hugmynd um að Baugur hafi verið með Miðfjarðará á leigu þegar hann fór þangað í laxveiði í ágúst í fyrra. „Ég hef aldrei farið í boði neins fyrirtækis í veiði, aldrei,“ segir Guðlaugur í samtali við Vísi. Hann segir að Haukur Leósson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafi boðið sér í ferðina. „Ég gerði síðan upp við Hauk,“ segir Guðlaugur Þór. 20. ágúst 2008 12:41 Jón Ásgeir og Hannes fóru ekki með í Miðfjarðará Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs og FL Group, og Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group og þáveradndi stjórnarfromaður Gesysi Green Eneergy, voru ekki í veiðiferðinni í Miðfjarðará sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Þetta staðfesti Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við Vísi í dag. 20. ágúst 2008 14:29 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira
Stjórnmálamenn eiga ekki að þiggja gjafir og boð fyrirtækja Hanna Birna Kristjánsdóttir, nýkjörin borgarstjóri, segir að að stjórnmálmenn eigi ekki að þiggja gjafir og boð frá fyrirtækjum. 21. ágúst 2008 19:48
Stórlaxar veiddu í boði Baugs við upphaf REI máls Skömmu áður en vinna við fyrirhugaðan samruna Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysi Green Energy (GGE) hófst fóru helstu áhrifamenn Orkuveitu Reykjavíkur ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra í laxveiði í boði Baugs. 20. ágúst 2008 11:32
Haukur fékk bónuskjör á veiðileyfum frá Baugi Haukur Leósson greiddi Baugi 480 þúsund krónur úr eigin vasa fyrir veiðiferðina í Miðfjarðará sem Vísir hefur fjallað um síðan í gær. 21. ágúst 2008 18:27
Þriggja daga veiði í Miðfjarðará kostar hálfa milljón Miðfjarðará við Laugabakka er um 200 km frá Reykjavík en hún er 113 km löng með yfir tvö hundruð merktum veiðistöðum. Áin er af mörgum talin fallegust áa hér á landi en veiðisvæðið samanstendur af fjórum ám. Dagurinn í Miðfjarðará kostar um 150 þúsund krónur með gistingu í glæsilegu veiðihúsi og fæði. 20. ágúst 2008 12:56
Vissi ekki að Baugur var með Miðfjarðará á leigu Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segist ekki hafa haft hugmynd um að Baugur hafi verið með Miðfjarðará á leigu þegar hann fór þangað í laxveiði í ágúst í fyrra. „Ég hef aldrei farið í boði neins fyrirtækis í veiði, aldrei,“ segir Guðlaugur í samtali við Vísi. Hann segir að Haukur Leósson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafi boðið sér í ferðina. „Ég gerði síðan upp við Hauk,“ segir Guðlaugur Þór. 20. ágúst 2008 12:41
Jón Ásgeir og Hannes fóru ekki með í Miðfjarðará Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs og FL Group, og Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group og þáveradndi stjórnarfromaður Gesysi Green Eneergy, voru ekki í veiðiferðinni í Miðfjarðará sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Þetta staðfesti Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við Vísi í dag. 20. ágúst 2008 14:29