Innlent

Björn Ingi og Vilhjálmur hefðu átt að greiða skatt af veiðiferðinni

Björn ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Björn ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson.

Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefðu átt að greiða skatt vegna veiðiferðarinnar sem þeir fóru ásamt Hauki Leóssyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni í ágúst í fyrra. Þetta er mat skattalögfræðings sem Vísir ræddi við.

Haukur Leósson, Björn Ingi Hrafnsson, Guðlaugur Þ. Þórðarson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson veiddu í Miðfjarðará dagana 11. - 14 ágúst í fyrra, þann tima sem Baugur var með ána á leigu. Guðlaugur fullyrðir að hann hafi sjálfur greitt fyrir sína ferð en Haukur Leósson bauð Birni Inga og Vilhjálmi.

Ólafur Kristjánsson, skattalögfræðingur hjá Logos, sagði í samtali við Vísi að strangt til tekið væru svona gjafir skattskyldar, sérstaklega þar sem upphæðin væri yfir því sem eðlilegt gæti talist þegar gjafir væru annars vegar. Það ylti hins vegar allt á heiðarleika þeirra sem ættu í hlut.

Í sjöundu grein laga um tekjuskatt segir að skattskyldar séu beinar gjafir í peningum eða öðrum verðmætum, þar með talin afhending slíkra verðmæta í hendur nákominna ættingja, nema um fyrirframgreiðslu upp í arf sé að ræða. Undanskildar séu þó tækifærisgjafir, enda sé verðmæti þeirra ekki meira en almennt gerist um slíkar gjafir svo og verðlitlir vinningar í almennum happdrættum og keppnum.

Vilhjálmur greiddi ekki skatt af veiðiferðinni. Björn Ingi sagði hins vegar í samtali við Vísi að hann vildi ekki tjá sig meira um þetta mál en hann hefði þegar gert.

Hjá Ríkisskattstjóra fengust þær upplýsingar að ekki væri komin framkvæmd á þetta ákvæði sem um ræði. Ekki sé vitað til þess að gengið hafi úrskurður hjá yfirskattanefnd vegna málsins og ekki séu komnar neinar verklagsreglur um neinar fjárhæðir þessu tengdu. Ekki náðist í Gest Steinþórsson, skattstjóra í Reykjavík, við vinnslu þessarar fréttar.








Tengdar fréttir

Stórlaxar veiddu í boði Baugs við upphaf REI máls

Skömmu áður en vinna við fyrirhugaðan samruna Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysi Green Energy (GGE) hófst fóru helstu áhrifamenn Orkuveitu Reykjavíkur ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra í laxveiði í boði Baugs.

Þriggja daga veiði í Miðfjarðará kostar hálfa milljón

Miðfjarðará við Laugabakka er um 200 km frá Reykjavík en hún er 113 km löng með yfir tvö hundruð merktum veiðistöðum. Áin er af mörgum talin fallegust áa hér á landi en veiðisvæðið samanstendur af fjórum ám. Dagurinn í Miðfjarðará kostar um 150 þúsund krónur með gistingu í glæsilegu veiðihúsi og fæði.

Vissi ekki að Baugur var með Miðfjarðará á leigu

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segist ekki hafa haft hugmynd um að Baugur hafi verið með Miðfjarðará á leigu þegar hann fór þangað í laxveiði í ágúst í fyrra. „Ég hef aldrei farið í boði neins fyrirtækis í veiði, aldrei,“ segir Guðlaugur í samtali við Vísi. Hann segir að Haukur Leósson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafi boðið sér í ferðina. „Ég gerði síðan upp við Hauk,“ segir Guðlaugur Þór.

Jón Ásgeir og Hannes fóru ekki með í Miðfjarðará

Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs og FL Group, og Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group og þáveradndi stjórnarfromaður Gesysi Green Eneergy, voru ekki í veiðiferðinni í Miðfjarðará sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Þetta staðfesti Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við Vísi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×