Innlent

Afskriftir á Kaupþingslánum - Fráleitt að tala um refsiverð brot

Brynjar Níelsson segir fráleitt að tala um að hluthöfum hafi verið mismunað.
Brynjar Níelsson segir fráleitt að tala um að hluthöfum hafi verið mismunað.
Það er óviðeigandi að yfirmaður ákæruvalds sé að velta því fyrir sér opinberlega hvort hinir eða þessir séu sekir um eitthvað. Þetta segir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður um viðtal við Helga Magnús Gunnarsson í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær. Þar velti Helgi Magnús fyrir sér refsiábyrgð manna vegna afskrifta á lánum tengdum kaupréttasamningum hjá starfsmönnum bankanna. Brynjar segir óviðeigandi að saksóknari tjái sig með þessum hætti þegar verið er verið að ræða um tiltekin mál.

Brynjar segir að allar vangaveltur manna um að refsiverð brot hafi átt sér stað vera á villigötum. Það sjáist vel ef menn skoði gögnin. Ekki sé um að ræða mismunun gagnvart hluthöfum og allt tal um refsiábyrgð sé fráleitt.

„Ég held að menn séu bara búnir að gleyma hvernig þetta byrjaði og umræðunni þá," segir Brynjar. Hann bendir á að hluthafar hafi samþykkt að starfsmenn hefðu ekki persónulega ábyrgð af kaupum sínum í hlutabréfum. Það sé ekki hægt að tala um mismunun gagnvart hluthöfum þegar hluthafar hafi sjálfir samþykkt þennan mismun á aðalfundi 2004. „Upphaflega höfðu þessir starfsmenn kaup- og sölurétt og sölurétturinn tryggði þá fyrir því að þeir færu alltaf skaðlausir út úr þessu," segir Brynjar. „Með þessu sölurétti voru starfsmenn tryggir fyrir því að þeir gætu þá selt þegar komin var hætta. Þá gátu menn bara selt og borgað skuldina. Það væri öðruvísi ef það lægi ekki fyrir," segir Brynjar.

Hann segir að síðan hafi sölurétturinn verið tekinn af en eftir hafi staðið samkomulag um að starfsmenn myndu mjög takmarkaða ábyrgð bera. Þetta samkomulag sé allt í samræmi við samþykktir aðalfundarins. „Menn eru bara með þessari ráðstöfun 25. September að fara eftir þessari ráðstöfun á sínum tíma," segir Brynjar.

Brynjar segir að menn geti auðvitað gagnrýnt þetta fyrirkomulag sem hafi verið gert árið 2004 og það hafi raunar verið gagnrýnt mikið á sínum tíma. En þetta fyrirkomulag hafi verið hluti af launakjörum manna á sínum tíma, sem menn hafi greitt skatta af. Þessi laun hafi síðan orðið að engu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×