Segja verktaka hafa haldið ferju í gíslingu 2. maí 2008 15:50
Farið er hörðum orðum um Vélsmiðju Orms og Víglundar, sem sá um stærstan hluta af endurbótum á Grímseyjarferjunni Sæfara, í nýrri skýrslu Vegagerðarinnar um málið. Þar er fyrirtækið sagt hafa haldið viðfangsefninu í gíslingu og að verktakann hafi virst skorta bæði vilja og getu til þess að vinna af þeim krafti að verkefninu sem verkáætlun og loforð um mönnun gerði ráð fyrir. Undir liðnum verkframkvæmd í skýrslu Vegagerðarinnar kemur fram að endurbætur á skipinu hafi verið boðnar út í desember 2005 en útboðsgögnum breytt á meðan á útboði stóð að ósk fjármálaráðuneytisins. Samkvæmt breytingunni var nokkuð slakað á gæðakröfum til verktaka. Sex tilboð bárust í verkið og uppfyllti ekkert þeirra kröfur útboðsins að öllu leyti. Engu að síður var samið við Vélsmiðju Orms og Víglundar um verkið en fyrirtækið átti næslægsta tilboð. Hótað að rifta samningum „Fljótlega eftir að framkvæmdir hófust kom í ljós að gera þurfti meiri lagfæringar á skipinu en ráð var fyrir gert í útboðsgögnum. Jafnframt reis ágreiningur við verktaka um túlkun útboðsgagna. Í framhaldinu kom einnig í ljós að verktakann virtist bæði skorta vilja og getu til að vinna af þeim krafti að verkefninu sem verkáætlun og loforð um mönnun gerði ráð fyrir. Mjög treglega gekk að fá endurskoðaðar verkáætlanir," segir í skýrslunni og því bætt við að framvinda verksins hafi ekki verið í neinu samræmi við áætlanir þrátt fyrir hótanir um riftun samninga. Þá hafi illa verið brugðist við athugasemdum og samskipti hafi verið stirð. Þá fór Vélsmiðjan fram á greiðslu í samræmi við framgang verks án þess þó að framvísa reikningum og var fallist á það til þess að halda verkinu gangandi. Fyrsti formlegi reikningurinn frá verktaka barst hins vegar ekki fyrr en í júní 2007 eða um svipað leyti og Grímseyjarferjumálið komst í hámæli. Bent er á að Grímseyingar hafi lagt fram ýmsar óskir um breytingar og viðbótarverk á síðari stigum verksins sem oft hafi komið beint til verktakans frá samgönguráðuneytinu. Verki átti að ljúka 30. september 2006 Verkinu átti upphaflega að vera lokið í lok september 2006 og endurskoðaðar áætlanir um verklok 1. mars 2007, 29. maí 2007 og 28. október 2007 hafi ekki ekki. Vélsmiðja Orms og Víglundar afhenti skipið ekki fyrr en 11. janúar í ár, eða um 15 mánuðum á eftir upphaflegri áætlun. Í umsögn Vegagerðarinnar um framgangsmátann segir að óheppilegt hafi verið að breyta útboðskröfum á tilboðstíma. „Fjallað var í upphafi of óskipulega um breytingar og viðbætur á verkinu. Framganga aðalverktaka var með öllu óviðunandi og hefði verksamningi tvímælalaust verið rift ef slíkt hefði komið fyrir í hefðbundnum verkum Vegagerðarinnar. Sú sérkennilega staða var hins vegar uppi í þessu verki, að verktakinn hafði viðfangsefnið í raun í gíslingu og var það mat manna, að það gæti tekið mjög langan tíma að ná skipinu frá verktakanum, ef í hart færi," segir Vegagerðin. Hún bendir þó á að ekkert bendi til annars en að verkgæði hafi verið með ágætum enda eftirlitið gott. „Vegna hinna erfiðu samskipta við verktakannn varð eftirlits- og lögfræðikostnaður Vegagerðarinnar miklu meiri en eðlilegt getur talist," segir einnig í matinu á framgangsmáta verksins.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira