Erlent

Ástralir hætta að fangelsa hælisleitendur

Áströlsk stjórnvöld hafa látið af þeirri stefnu sinni að fangelsa alla þá sem leita eftir pólitísku hæli í landinu.

Þetta er einn liðurinn í allsherjar endurskipulagningu á innflytjendalögum landsins. Mannréttindasamtök í landinu hafa fagnað þessum breytingum.

Hin stranga löggjöf sem áður gilti var komið á í tíð Verkamannaflokksins á síðasta áratug. Hún vakti miklar deilur þar sem börn voru ekki undanskilin þegar fólki í hælisleit var stungið í steininn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×