Innlent

Segir Samfylkinguna vinna gegn hagsmunum landsmanna

Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins.
Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins.

Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segir Samfylkinguna vinna gegn hagsmunum með ákvörðun umhverfisráðherra að umhverfismat eigi að fara fram vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka.

,,Þetta er því sérstök aðgerð Samfylkingarinnar gegn hagsmunum landsmanna og ekki síður hinna sem búa á viðkomandi svæði og kæmu til með að njóta sérstaks ávinnings af fyrirhuguðum framkvæmdum," segir Valgerður á heimasíðu sinni.

Í gær ákvað Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, að heildstætt mat skuli fara fram á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka við Húsavík. Skipulagsstofnun hafði ákveðið að slíkt mat skyldi ekki fara fram. Meta á allt svæðið í einu, það er að segja álverið á Bakka, Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum til Húsavíkur.

,,Á sama tíma og íslenskt efnahagslíf á í mesta vanda sem hér hefur upp komið í áraraðir ákveður umhverfisráðherra að auka enn á vanda þjóðarbúsins og senda geigvænleg skilaboð til þeirra fjölmörgu aðila sem ráða miklu um þau kjör sem íslenskum fjármálafyrirtækjum og opinberum aðilum bjóðast," segir Valgerður.

Ákvörðun umhverfisráðherra er til þess gerð að friða háværan smáhóp í Samfylkingunni sem hefur verið forystu hennar erfiður undanfarnar vikur, að sögn Valgerðar sem bætir við að ekki sé skeytt um hagsmuni Húsavíkur, Þingeyinga og nágrannabyggða. ,,Ekki er skeytt um þjóðarhag. Engu skiptir þetta fólk það alvarlega ástand sem blasir við í samfélaginu. Lengi hefur verið beðið eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar til styrktar atvinnulífinu en í stað þess kemur rothögg," segir Valgerður.

Valgerður kallar sjálfstæðismenn til ábyrgðar og spyr hvort að þeir ætli að taka þátt í því skemmdarverki sem er í uppsiglingu.

Skrif Valgerðar Sverrisdóttur, varaformanns Framsóknarflokksins, má sjá hér.


Tengdar fréttir

Þórunn: Álver á Bakka í umhverfismat

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að heildstætt mat skuli fara fram á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka við Húsavík. Skipulagsstofnun hafði ákveðið að slíkt sameiginlegt mat skyldi ekki fara fram.

Sorgmæddur yfir ákvörðun Þórunnar

Sveitarstjóri Norðurþings er ósáttur með þá ákvörðun umhverfisráðherra að heildstætt mat skuli fara fram á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka við Húsavík.

Árni: Flott hjá Þórunni

Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands fagnar ákvörðun umhverfisráðherra um að fyrirhuguð framkvæmd við álver á Bakka fari í umhverfismat. ,,Þetta er flott hjá henni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×