Innlent

Þögn í stað mótmæla í dag

Fjölmenn mótmæli hafa verið á Austurvelli undanfarnar vikur.
Fjölmenn mótmæli hafa verið á Austurvelli undanfarnar vikur.

Ræðuhöld víkja fyrir kyrrðar- og friðarstund á Austurvelli í dag. Breiðfylking gegn ástandinu segir í tilkynningu að í undanfara jólanna hafi skiljanlega dregið úr aðsókn á fundina. Mæður og feður vilji búa börnum sínum gleðileg og friðsæl jól.

Slíkt er sjálfsagt og eðlilegt, en um leið sé engin ástæða til að leggja fundina af. Aðstæður kalli hins vegar á breytt fundarform. Því hefur verið brugðið á það ráð að fresta ræðuhöldum, með tilheyrandi kostnaði vegna leigu á tækjabúnaði, og halda þess í stað kyrrðar og friðarstund.

Samtökin segja að á bakvið tjöldin sé unnið af mikilli elju og dugnaði við að undirbúa frekara andóf gegn ríkisstjórninni, sem sé rúin trausti mikils meirihluta þjóðarinnar. Stefnt er að öflugum aðgerðum strax að hátíðum afloknum og fyrr ef ástæða þykir. Fólk er hvatt til að mæta á Austurvöll í dag þrjú og sýna samstöðu gegn ástandinu með 17 mínútna þögn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×