Mistök að greina ekki strax frá kostnaði við einkaþotuflug 30. apríl 2008 14:38 MYND/Vilhelm
Geir H. Haarde forsætisráðherra viðurkenndi á Alþingi í dag að það hefðu verið ákveðin mistök í upphafi að greina ekki frá kostnaði við flug með einkaþotu á leiðtogafund NATO í upphafi mánaðar. Þá sagði hann að flugferðin hefði verið kolefnisjöfnuð líkt og aðrar ferðir ráðherra.Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri - grænna, spurði ráðherra ítarlega út í ferðina, meðal annars um kostnað við ferðina, hvers vegna upplýsingum um kostnað hefði verið haldið leyndum í byrjun og hvort það væri gott fordæmi í umhverfislegu tilliti að nýta einkaþotu.Álfheiður sagði Vísi hafa greint frá því 1. apríl að forsætisráðherra og utanríkisráðherra færu á fund NATO með einkaþotu og margir hefðu talið að um aprílgabb væri að ræða. Það hafi hins vegar ekki raunin en hins vegar hefði aðstoðarmaður forsætisráðherra sagt að góður díll hefði náðst og fjarvera ráðherra hefði verið stytt með því að nýta einkaþotu. Þar á eftir hefðu komið fréttir um að kostnaður yrði ekki gefinn upp og hún hefði lagt fram umrædda fyrirspurn þegar hann hefði ekki legið fyrir.Einkaþotuflug kolefnisjafnaðGeir H. Haarde kom í pontu og las meðal annars upp úr fréttatilkynningu sem forsætisráðuneytið sendi frá sér 8. apríl um kostnað við ferðina. Einkaþotan hefði kostað 4,2 milljónir og ríkið hefði fengið þotuna á afsláttarkjörum. Gert hefði verið heiðursmannasamkomulag við flugrekandann að gefa ekki upp verðið en síðar hefði komið fram að ríkið gæti ekki fallist á þá skilmála og skildi flugrekandinn það. Þessi farkostur hefði verið valinn til þess að spara tíma og fyrirhöfn og kostnaðaraukinn miðað við almennt flug hefði verið það lítill að það hefði verið talið réttlætanlegt. Kostnaðaraukinn hefði verið 200 þúsund krónur.Þá sagði forsætisráðherra að hann hefði talið það skynsamlega ráðstöfun að nýta einkaþotuna en um algjöra undantekningu væri að ræða. Viðurkenndi hann enn fremur að það hefðu verið ákveðin mistök í upphafi að greina ekki frá kostnaði við ferðina. Um umhverfisþáttinn sagði ráðherra að allar ferði ráðamanna væru kolefnisjafnaðar í tengslum við svokallað Kolviðarverkefni.Blöskraði dómgreindarleysi ráðherraÞingmenn vinstri - grænna gagnrýndu ráðherra og sagði Jón Bjarnason að honum og almenningi hefði blöskrað tíðar ferðir ráðherra til útlanda. Þá blöskraði honum einnig dómgreindarleysi ráðherra að koma í fjölmiðla og segja að kostnaðurinn við flugið yrði ekki gefinn upp en slíkt væri brot á lögum.Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagði svör Geirs afar skýr en sakaði Jón um að slá pólitískar keilur með því að segja að honum og þjóðinni blöskraði ferðir ráðherra. Sumir ráðherrar þyrftu að ferðast mikið starfs síns vegna, þar á meðal forsætisráðherra og utanríkisrápherra. Benti hann á að sama gilti um þingmenn sem tækju að sér trúnaðarstörf fyrir þingið á erlendum vettvangi. Til að mynda væru bæði formaður og þingflokksformaður Vinstri - grænna utan landsteina nú vegna opinberra erindagjörða.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira