Hætta á meiri einsleitni á fjölmiðlamarkaði 30. september 2008 15:02 MYND/E.Ól
Birgir Guðmundsson, lektor við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri, telur æskilegast að einhvers konar veggir verði á milli ritstjórna fari svo að Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, kaupi Fréttablaðið. Að öðrum kosti sé hætta á meiri einsleitni í ritstjórnarlegu tilliti. Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að Fréttablaðið fari undir Árvakur samkvæmt samkomulagi eigenda Árvakurs og 365 sem verið sé að vinna að. Verði af sameiningunni verður til risi á dagblaðamarkaði. Birgir Guðmundsson segir að rekstrarlega geti þetta komið sér vel fyrir blöðin sem eigi undir högg að sækja við núverandi aðstæður. Þau geti náð fram hagræðingu í dreifingu og prenti. „En maður hlýtur líka að spyrja sig hvort þetta hafi víðtækari áhrif og hversu víðtækt samstarf blaðanna verður. Það er áhyggjuefni út frá frjálsri fjölmiðlun og fjölbreytni ef samvinnan gengi svo langt að það yrði minni fjölbreytni í ritstjórnarlegu tillti. Það yrði því æskilegast að það yrðu einhvers konar veggir á milli ritstjórna þannig að hagræðingin næði ekki til efnistaka," segir Birgir. Birgir bendir á að blaðamannasamtök erlendis hafi lýst yfir áhyggjum af því að vaxandi arðsemiskrafa á fjölmiðlamarkaði sé farin að hafa áhrif á efni og efnistök. Það leiði til þess að blaðamennskan verði einhæfari og sama nálgun verði á hinum ólíku málum. Þá hafi blaðamannasamtök einnig áhyggjur af því að hagræðingarkrafan leiði til þess að reyndum blaðamönnum sé sagt upp og stólað sé meira á lausamenn. Reikna má með því að ef af samrunanum verður komi hann til kasta samkeppnisyfirvalda. „Þetta er eitt af því sem verður áhugavert að fylgjast með, sérstaklega í ljósi umræðunnar um fjölmiðlafrumvarp," segir Birgir og bendir á að nefnd sé enn að störfum við að undirbúa slíkt frumvarp. Þar hafi verið kafli um samkeppnismál. Birgir telur líklegt að Samkeppniseftirlitið geri einhverjar athugasemdir við samrunann og takmarki samstarf blaðanna á einhvern hátt.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Sjá meira