Innlent

Engin afgerandi niðurstaða eftir fundi stjórnvalda

Engin afgerandi niðurstaða virðist liggja fyrir eftir stöðug fundahöld stjórnvalda, seðlabanka, atvinnulífsins, viðskiptabankanna og fleiri hagsmunaaðila alla helgina.

Fundi Geirs H. Haarde, Össurar Skarphéðinssonar, Björgvins G. Sigurðssonar og Árna Mathiesen með fulltrúum Fjármálaeftirlitsins og efnahagsráðgjöfum J.P. Morgan bankans lauk á þriðja tímanum í nótt án nokkurrar yfirlýsingar um aðgerðir. Stjornarandstaðan hefur verið boðuð til fundar hjá forsætisráðherra klukkan hálftíu og fulltrúar lífeyrissjóðanna klukkan ellefu fyrir hádegi, en lífeyrissjóðirnir hafa ekki gengið frá neinu samkomulagi þar sem þeir hafa ekki fengið svör við þeim skilyrðum sem þeir settu fyrir aðkomu að málinu.

Þá liggur ekki fyrir neitt bindandi samkomulag við verkalýðshreyfinguna. Eftir því sem Fréttastofan kemst næst, varð hinsvegar samkomulag um það við Landsbankann og Kaupþing, að bankarnir seldu hluta af eignum sínum í útlöndum, en ekki liggur fyrir hversu mikið. Jafnframt að þeir taki þátt í yfirtöku ríkissjóðs á Glitni. Í ljósi þessarar óvissu liggur ekki fyrir hvort opnað verður fyrir viðskipti í kauphöllinni hér á landi í dag, eða hvort Landsbankinn, Kaupþing og Glitnir verði ekki með í viðskiptunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×