Hefur ekkert heyrt í dóttur sinni síðan í janúar Breki Logason skrifar 21. apríl 2008 13:08 Dagbjört Rós Halldórsdóttir
Dagbjört Rós Halldórsdóttir hefur ekki séð rúmlega tveggja ára gamla dóttur sína síðan í janúar. Hún flýgur til Bandaríkjanna á morgun með von um að hitta stúlkuna en barnsfaðir hennar svarar hvorki tölvupóstum né símtölum. „Ég er náttúrulega mjög spennt en smá kvíðin líka. Ég hef ekkert heyrt í henni síðan í janúar og veit því ekkert hvað mætir mér þarna úti," segir Dagbjört sem hefur reynt margt til þess að komast í samband við dótturin sína sem heitir Caitlin. Vísir hefur fylgst með baráttu Dagbjartar sem fékk ekki landvistarleyfi í Bandaríkjunum og þurfti því að skilja stúlkuna eftir. Síðan þá hefur hún átt í harðri forræðisdeilu en hefur umgengisrétt yfir stúlkunni þegar hún kemur til Bandaríkjanna. „Lögfræðingurinn minn hefur reynt að ná sambandi við lögfræðing hans[barnsföður Dagbjartar] en án árangurs. Við vitum í sjálfu sér ekkert hvort hann er þarna eða einhversstaðar annarsstaðar. Ef hann er þarna verður hann að láta mig hafa stelpuna," segir Dagbjört en aðalmeðferð í forræðismálinu fer fram í Bandaríkjunum 5. og 6.júní. Caitlin litla hefur ekki séð móður sína síðan í janúar. „Þessi ferð var bara plönuð einn, tveir og þrír. Ég verð bara að fá að vita hvort það sé í lagi með barnið mitt og þetta er eina leiðin." Barátta sem þessi kostar sitt og hafa vinir og kunningjar Dagbjartar staðið með henni. Meðal annars eru á dagskránni tónleikar til styrktar Dagbjörtu þann 15.maí á Nasa. Þar koma fram m.a. Páll Óskar, Buff og Helga Dýrfinna. „Þá verða mestu fjárútlátin og því er þetta kærkomið. Núna hefur kostnaðurinn aðallega farið í þessi ferðalög en þegar réttarhöldin hefjast þarf ég að borga lögfræðingnum mínum o.fl.." Dagbjört vonast til þess að geta eytt rúmri viku með dóttur sinni og ætlar að koma aftur heim þann 3.maí.
Tengdar fréttir Tónleikar til styrktar Dagbjörtu Tónleikar verðar haldnir til styrktar Dagbjörtu Rós Halldórsdóttur þann 15. maí á skemmtistaðnum Nasa. Eins og greint hefur verið frá í ýmsum fjölmiðlum stendur Dagbjört í harðvítugri forræðisdeilu við bandarískan barnsföður sinn. 10. apríl 2008 15:19 Framtíð Caitlin litlu ræðst eftir þrjár vikur „Það kemur fyrir að ég horfi löngunar augum á fólkið koma til landsins. Þá er ég að vona að hann gefist bara upp og hún birtist allt í einu. Ég veit þetta hljómar hálf geðveikislega en ég sveiflast bara upp og niður alla daga,“ segir Dagbjört Rós Halldórsdóttir sem stendur í forræðisdeilu við bandarískan eiginmann sinn. 6. nóvember 2007 11:08 Dagbjört hitti Caitlin litlu “Núna er ég búin að tala við Dagbjörtu og Caitlin er hjá henni eins og er, það gengur rosalega vel,” skrifar vinkona Dagbjartar Rósar á bloggsíðu Dagbjartar í gærkvöldi. 27. nóvember 2007 12:20 Caitlin litla ekki heim fyrir þessi jól Sagan um hana Caitlin litlu ætlar að vera lífseig. Dagbjört Rós móðir hennar er nú komin heim frá Bandaríkjunum þar sem hún hitti stelpuna og kom fyrir dómara í forræðismáli sínu. 13. desember 2007 12:39 Rekin frá Bandaríkjunum en barnið varð eftir Dagbjört Rós Halldórsdóttir, fær ekki að snúa til Bandaríkjanna til að sækja sautján mánaða dóttur sína. Henni var vísað frá Bandaríkjunum fyrir tveimur mánuðum en hún hafði þá ekki endurnýjað dvalarleyfi sitt. Dóttirin varð eftir í Bandaríkjunum, en Dagbjört fær ekki vegabréfsáritun til að hitta barnið. 16. júlí 2007 18:58 Getur sótt um undanþágu hjá Heimavarnarráðuneytinu Dagbjört Rós Halldórsdóttir var rekinn frá Bandaríkjunum fyrir tveimur mánuðum, eftir að hún var handtekinn fyrir hraðakstur. Dvalarleyfi hennar var útrunnið en erfiðleikar voru í hjónabandinu og bandarískur eiginmaður hennar hafði þá um tíma komið sér undan því að skrifa upp á umsókn hennar um græna kortið. 17. júlí 2007 18:53 Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira
Tónleikar til styrktar Dagbjörtu Tónleikar verðar haldnir til styrktar Dagbjörtu Rós Halldórsdóttur þann 15. maí á skemmtistaðnum Nasa. Eins og greint hefur verið frá í ýmsum fjölmiðlum stendur Dagbjört í harðvítugri forræðisdeilu við bandarískan barnsföður sinn. 10. apríl 2008 15:19
Framtíð Caitlin litlu ræðst eftir þrjár vikur „Það kemur fyrir að ég horfi löngunar augum á fólkið koma til landsins. Þá er ég að vona að hann gefist bara upp og hún birtist allt í einu. Ég veit þetta hljómar hálf geðveikislega en ég sveiflast bara upp og niður alla daga,“ segir Dagbjört Rós Halldórsdóttir sem stendur í forræðisdeilu við bandarískan eiginmann sinn. 6. nóvember 2007 11:08
Dagbjört hitti Caitlin litlu “Núna er ég búin að tala við Dagbjörtu og Caitlin er hjá henni eins og er, það gengur rosalega vel,” skrifar vinkona Dagbjartar Rósar á bloggsíðu Dagbjartar í gærkvöldi. 27. nóvember 2007 12:20
Caitlin litla ekki heim fyrir þessi jól Sagan um hana Caitlin litlu ætlar að vera lífseig. Dagbjört Rós móðir hennar er nú komin heim frá Bandaríkjunum þar sem hún hitti stelpuna og kom fyrir dómara í forræðismáli sínu. 13. desember 2007 12:39
Rekin frá Bandaríkjunum en barnið varð eftir Dagbjört Rós Halldórsdóttir, fær ekki að snúa til Bandaríkjanna til að sækja sautján mánaða dóttur sína. Henni var vísað frá Bandaríkjunum fyrir tveimur mánuðum en hún hafði þá ekki endurnýjað dvalarleyfi sitt. Dóttirin varð eftir í Bandaríkjunum, en Dagbjört fær ekki vegabréfsáritun til að hitta barnið. 16. júlí 2007 18:58
Getur sótt um undanþágu hjá Heimavarnarráðuneytinu Dagbjört Rós Halldórsdóttir var rekinn frá Bandaríkjunum fyrir tveimur mánuðum, eftir að hún var handtekinn fyrir hraðakstur. Dvalarleyfi hennar var útrunnið en erfiðleikar voru í hjónabandinu og bandarískur eiginmaður hennar hafði þá um tíma komið sér undan því að skrifa upp á umsókn hennar um græna kortið. 17. júlí 2007 18:53